Hálf milljón manna svipt lagalegum réttindum

Dómsúrskurður hæstaréttar Bandaríkjanna var óundirritaður.
Dómsúrskurður hæstaréttar Bandaríkjanna var óundirritaður. AFP

Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur heimilað ríkisstjórn Trump að afturkalla lagaleg réttindi hundraða þúsunda innflytjenda frá Kúbu, Haítí, Níkaragva og Venesúela, í bili hið minnsta. 

Ákvörðunin nær til 532.000 manns sem komu til Bandaríkjanna undir svokallaðri skilorðsáætlun fyrrum Bandaríkjaforsetans Joe Biden.

Skilorðsáætlunin heimilaði allt að 30.000 manns að koma til Bandaríkjanna á hverjum mánuði í tvö ár vegna bágrar stöðu mannréttinda í löndunum fjórum.

Hæstaréttardómarar mótmæla

Tveir dómara við réttinn, þær Ketanji B. Jackson og Sonia Sotomayor, skiluðu séráliti og vöruðu við „hroðalegum afleiðingum“ þess að snúa lífi hálfrar milljón manna á hvolf á meðan þeir bíða afgreiðslu á réttarkröfum sínum.

„Hæstiréttur hefur einfaldlega klúðrað mati sínu í dag,“ er haft eftir þeim. 

Dómsúrskurður hæstaréttar var óundirritaður.
Dómsúrskurður hæstaréttar var óundirritaður. AFP/Drew Angerer

Þær segja innflytjendurna eiga um tvennt að velja: að snúa aftur til heimalandsins og horfast í augu við þá hættu sem steðjar að þeim þar. 

Hinn valkostinn segja þær „að dveljast áfram í Bandaríkjum og hætta á brottvísun,“ sem reynst hafi mörgum erfið og harkaleg lífsreynsla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »