Þorpið Blatten er að mestu rústir eftir að hluti af Birch-jökli í Wallis-héraði í suðurhluta Sviss hrundi í gær. Tonnavís af grjóti og ís féllu niður fjallshlíðina og ofan í dalinn fyrir neðan.
Um 300 manns bjuggu í þorpinu sem var rýmt í síðustu viku vegna yfirvofandi hættu.
64 ára maður var talinn hafa verið í þorpinu þegar berghlaupið féll og er hans saknað.