Paul Doyle, 53 ára Breti, hefur verið ákærður í sjö ákæruliðum fyrir að hafa keyrt á fólksfjölda í Liverpool í vikunni. Alls særðust 79 manns, þar á meðal börn.
Er Doyle meðal annars ákærður fyrir gáleysisakstur og fyrir að særa fólk ólöglega af ásettu ráði, að sögn Jenny Sims hjá lögreglunnar í Merseyside. Maðurinn verður dreginn fyrir dóm á morgun.
Doyle, sem er fjölskyldufaðir, er grunaður um að hafa ekið bifreið á hóp stuðningsmanna knattspyrnuliðsins Liverpool þar sem þúsundir stuðningsmanna höfðu safnast saman til að fagna Englandsmeistaratitli liðsins.
Sá yngsti sem særðist er 9 ára en sá elsti er 78 ára.
Lögregluyfirvöld telja að um einangrað atvik hafi verið að ræða og að hann hafi einn staðið að verki.