Lavrov hefur áhyggjur af uppbyggingu Þýskalandshers

Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands.
Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands. AFP/Alexander Zemlianichenko

Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, segir áform Þjóðverja um að byggja upp „sterkasta“ her Evrópu vera „mikið áhyggjuefni“ og vísaði til heimsstyrjaldanna á síðustu öld.

„Nýlega lýsti nýr kanslari Þýskalands, hr. [Friedrich] Merz, því yfir að hann ætlaði að gera Þýskaland aftur að, eins og hann orðaði það, leiðandi hernaðarvaldi Evrópu,“ sagði Lavrov.

„Margir minnast strax tímabilanna á síðustu öld þegar Þýskaland varð tvisvar að leiðandi hernaðarvaldi og hversu miklum vandræðum það olli.“

Rússland ógn við öryggi allra Evrópuríkja

Merz Þýska­landskansl­ari sagði síðasta fimmtudag að Rúss­land væri ógn við ör­yggi allra Evr­ópu­ríkja og að Þjóðverj­ar væru staðráðnir í að verja banda­menn sína.

Um­mæli Merz féllu í Viln­íus, höfuðborg Litháen, en þar var hald­in sér­stök at­höfn til þess að setja form­lega á fót fyrstu her­stöð þýska hers­ins utan landa­mæra Þýska­lands frá ár­inu 1945.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »