Forsetaþyrla Pútín lenti í miðri árás

„Á tímabilinu sem forsetinn var við vinnu á Kúrsk-svæðinu hóf …
„Á tímabilinu sem forsetinn var við vinnu á Kúrsk-svæðinu hóf óvinurinn fordæmalausa árás,“ segir Dashkin og bætir við að „við stóðum samtímis í loftvarnarbaráttu og tryggðum öryggi forsetaþyrlunnar í loftinu“. AFP/Alexander Kazakov

Þyrla Vladimírs Pútín varð að skjóta niður dróna til að verjast árás Úkraínumanna, á meðan Rússlandsforseti var um borð.

Yfirmaður loftvarna, Yuri Dashkin, segir þyrlu Pútín hafa lent í „loftvarnarbaráttu“ eftir að hafa fundið sig í miðri „fordæmalausri úkraínskri drónaárás“.

Atvikið er sagt hafa átt sér stað í síðustu viku þegar Pútín var í heimsókn á Kúrsk-svæðinu.

„Á tímabilinu sem forsetinn var við vinnu á Kúrsk-svæðinu hóf óvinurinn fordæmalausa árás,“ segir Dashkin og bætir við að „við stóðum samtímis í loftvarnarbaráttu og tryggðum öryggi forsetaþyrlunnar í loftinu“.

Fullyrðir hann þá að rússneskar hersveitir hafi eyðilagt nokkra úkraínska dróna við aðgerðina.

„Markmiðinu var náð.“

Telegraph

Kyiv Independent

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »