Björgunarsveitarmenn hafa fundið lík fimm skíðamanna í svissnesku Ölpunum í nágrenni skíðadvalarleyfisstaðarins Zermatt.
Þyrla var send til að kanna svæðið í kringum fjallið Rimpfischhorn eftir að fjallgöngumenn gengu fram á yfirgefin skíði nálægt toppi fjallsins í gær og gerðu yfirvöldum viðvart.
Svissneska lögreglan segir í yfirlýsingu að lík skíðafólksins hafi fundist fljótt og að unnið sé að því að bera kennsl á hin látnu. Ekki liggur fyrir hver dánarorsök þeirra var.