Tveir ísraelskir sendiráðsstarfsmenn voru drepnir í skotárás fyrir utan gyðingasafn í Washington í Bandaríkjunum í nótt. Árásarmaðurinn er í haldi lögreglunnar en árásinni er lýst sem gyðingahatri.
Kristi Noem, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði í færslu á samfélagsmiðlinum X að hinir látnu hefðu verið starfsmenn ísraelska sendiráðsins.
Árásin átti sér stað fyrir utan gyðingasafnið og segir lögreglan að byssumaðurinn, sem er þrítugur karlmaður frá Chicago, hafi síðan gengið inn í safnið þar sem hann var handtekinn af öryggisvörðum.
Pamela Smth, lögreglustjóri í Washington, sagði á fréttamannafundi, að maðurinn hefði verið handtekinn og færður í gæsluvarðhald. Hún sagði að hann hefði öskrað, „frjáls, frjáls Palestína“ eftir að hann var færður í varðhald.
Þegar lögregla kom á vettvang fundust karl og kona meðvitundalaus og þau önduðu ekki. Þrátt fyrir björgunartilraunir fyrstu viðbragðsaðila sem komu á staðinn voru þau bæði úrskurðuð látin.
Sendiherra Ísrael í Bandaríkjunum, Yechiel Leiter, greindi frá því að hin látnu hefðu verið par sem hafi ætlað að trúlofa sig á næstunni.
Donald Trump Bandaríkjaforseti fordæmdi árásina.
„Þessum hræðulegu morðum sem byggjast á gyðingahatri verður að ljúka, NÚNA!,“ skrifaði Trump í færslu á samfélagsmiðli sínum, Truth Social, og bætti við. „Hatur og róttækni eiga ekki heima í Bandaríkjunum.“
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði að þetta væri svívirðilegt athæfi og huglaust gyðingahatur.
„Við munum hafa uppi á þeim sem bera ábyrgð og draga þá fyrir rétt,“ sagði utanríkisráðherrann.
„Við teljum að skotrárásin hafi verið framin af þeim sem er í haldi,“ sagði Pamela Smith lögreglustjóri við fréttamenn.
Fyrir skotárásina sást hinn grunaði ganga fram og til baka fyrir utan safnið. Þegar hann nálgaðist fjögurra manna hóp dró hann upp skammbyssu og hóf skothríð.