Trump þiggur flugvél að gjöf frá Katar

Flugvélin alræmda.
Flugvélin alræmda. AFP

Utanríkisráðherra Bandaríkjanna tilkynnti í dag að Bandaríkin hygðust þiggja Boeing 747 flugvél að gjöf frá Persaflóaríkinu Katar. 

Óhætt er að segja að gjöfin þyki nokkuð umdeild en samkvæmt bandarísku stjórnarskránni er forseta óheimilt að þiggja gjafir frá öðrum ríkjum nema með samþykki þingsins.

Þótti mörgum gjöfin einum of veglega og töldu hana tilraun til þess að kaupa velvild Donalds Trumps Bandaríkjaforseta. Margir samherjar Trumps hafa tekið undir þá gagnrýni, en öldungardeildarþingmaðurinn Ted Cruz mun t.d. hafa viðrað skoðun sína um að mikil öryggishætta fylgdi því að þiggja gjöfina.

Þessu hefur Trump vísað á bug en hann hefur m.a. haldið því fram að löglegt sé að þiggja gjöfina þar sem hún verði afhent bandaríska varnarmálaráðuneytinu en ekki honum persónulega. Hann hét því einnig að hann myndi ekki nota vélina eftir að hann léti af embætti.

Bætist við stóran flota

Til þess að hægt verði að nota vélina þarf fyrst að koma fyrir ýmsum öryggis- og varnarbúnaði en núverandi flugvélar forsetans eru allar með búnaði sem gerir þeim kleift að verjast rafsegulsbylgjum frá kjarnorkusprengingum svo fátt eitt sé nefnt. 

Í umfjöllun breska ríkisútvarpsins er haft eftir Mark Cancian, háttsettum ráðgjafa hjá hugveitunni Center for Strategic and International Studies, að kostnaður við slíka uppfærslu gæti auðveldlega numið einum milljarði dala.

Tvær 747 vélar eru nú þegar í flota forsetans, en þær voru framleiddar árið 1990 og því nokkuð komnar til ára sinna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »