Fyrr í dag fyrirskipaði verðlagseftirlitsmaður Sviss ferðaþjónustuvefnum Booking.com að lækka þóknanir sínar fyrir hótelgistingu um næstum fjórðung.
Verðlagseftirlitsmaðurinn sagði í yfirlýsingu að hann hefði haft samband við bandaríska fyrirtækið til að leita lausna, en að sú tilraun hafi ekki borið árangur þrátt fyrir ítrekanir. Eftirlitsmaðurinn sagði að þóknunin sem fyrirtækið innheimtir af svissneskum hótelum væri óhóflega há. Hann fyrirskipaði Booking.com að lækka þóknun sína um næstum fjórðung að meðaltali innan þriggja mánaða.
„Tilgangur aðgerðarinnar er að auka samkeppnishæfni svissneskra hótela í umhverfi alþjóðlegrar samkeppni en um leið að draga úr fjárhagsbyrði viðskiptavina,“ sagði eftirlitsmaðurinn.
Booking.com ætlar að áfrýja málinu til svissneska stjórnsýsludómstólsins. Fyrirtækið lýsti því jafnframt yfir að þóknun þess myndi ekki breytast fyrr en sá dómur yrði kveðinn upp.
„Samstarfsaðilar okkar í gistiþjónustu hafa fjölmargar leiðir til að markaðssetja eignir sínar til viðskiptavina, það er val hvort þeir vilja skrá sig á okkar vettvang eða annars staðar,“ sagði talsmaður fyrirtækisins. „Við erum ekki sammála því að lækka með valdi kostnað á vöru sem er algjörlega valfrjáls.“
HotellerieSuisse, samtök atvinnurekenda í ferðamálum í Sviss, fögnuðu úrskurði eftirlitsmannsins og sagði hann sýna gott fordæmi. Ekki aðeins fyrir hótel í landinu heldur einnig Evrópu í heild sinni. Samtökin sögðust ætla að kanna hvernig og að hvaða marki hægt væri að bæta fyrir þær þóknanir sem hafa verið greiddar.