Frakkar ætla að byggja nýtt fangelsi með hámarksöryggisgæslu í Frönsku Gíneu. Þar verða hýstir fíkniefnasalar og herskáir íslamistar, að sögn dómsmálaráðherra Frakklands.
Gerald Darmanin sagði dagblaðinu Le Journal du Dimanche að fólk sem hefði gerst sekt um skipulagða glæpastarfsemi „á öllum stigum” fíkniefnasölu myndi dúsa í fangelsinu.
Fangelsið, sem til stendur að opna árið 2028, verður byggt á einöngruðum stað langt inni í Amazon-frumskóginum í héraðinu Satin-Laurent-du-Maroni í norðvesturhluta Frönsku Gíneu.
Tilkynnt var um smíði fangelsisins eftir röð ofbeldisfullra mála, tengdum glæpagengjum, þar sem sjónum hefur verið beint að fangelsum og starfsfólki þess víðs vegar um Frakkland undanfarna mánuði, að því er BBC greindi frá.
Nýja fangelsið mun taka um 500 manns og verða sérstakar álmur hannaðar fyrir hættulegustu glæpamennina.