Rússland og Úkraína komust fyrr í dag að samkomulagi um fangaskipti þúsund fanga frá hvoru landi. Þetta var niðurstaða friðarfundar sendinefna beggja ríkja sem sögðu sömuleiðis að fundi loknum að þau ætli að skiptast á hugmyndum um mögulegt vopnahlé.
Þá var hugsanlegur fundur þjóðarleiðtoga ríkjanna, Volodimír Selenskí og Vladimír Pútín, ræddur.
Mikil eftirvænting var fyrir fundinum, sem stóð yfir í 90 mínútur, en hann var sá fyrsti á milli ríkjanna tveggja frá því að Rússland réðst inn í Úkraínu fyrir þremur árum. Mörgum þykir niðurstaða fundarins þó vonbrigði en endalok stríðsátakanna virðast ekki mikið nær að honum loknum.
Fyrir fundinn höfðu úkraínsk yfirvöld gefið út að þau sæktust eftir „skilyrðislausu vopnahléi“ í átökum ríkjanna sem hafa valdið eyðileggingu á stórum svæðum í Úkraínu og hrakið milljónir manna á flótta.
Rússnesk yfirvöld hafa ítrekað og stöðugt hafnað þeirri kröfu og hefur ekki orðið nein breyting þar á.
Eina skýra niðurstaðan sem virðist hafa komið út úr fundinum er samningur um skipti á 1.000 föngum frá hvoru landi.
Að fundi loknum tóku báðar samninganefndir þó fram að þær muni „kynna sína sýn á mögulegu vopnahléi í framtíðinni“.
„Almennt erum við ánægð með niðurstöðurnar og tilbúin að halda áfram samskiptum,“ sagði Vladímír Medinsky, aðalsamningamaður Rússlands, að fundi loknum.
Aðalsamningamaður Úkraínu, varnarmálaráðherrann Rustem Umerov, sagði að „næsta skref“ yrði fundur milli Pútíns og Selenskís. Rússneska sendinefndin sagðist taka tillit til beiðninnar.
„Við skiljum að ef við viljum ná framförum þurfum við að halda þennan fund leiðtoganna,“ sagði Georgiy Tykhy, talsmaður utanríkisráðuneytis Úkraínu, síðar og lofaði fangaskiptin sem „frábæra niðurstöðu“.