Sonur rapparans og tónlistarmógúlsins Sean „Diddy“ Combs, Justin Combs, er ákærður fyrir að tæla konu frá Lousiana til Los Angeles í þeim tilgangi að henni yrði hópnauðgað m.a. af föður hans.
Yfir 30 einstaklingar hafa verið kallaðir til að bera vitni við réttarhöld P. Diddy á Manhattan, í New York, sem staðið hafa yfir síðan 5. maí. Rapparinn er ákærður fyrir kynlífsmansal, fjárkúganir og kynferðisofbeldi gegn fjölda fórnarlamba.
Samkvæmt dómsskjölum á Justin að hafa platað hana til Kaliforníu í apríl 2017, undir þeim formerkjum að hann útvegaði henni vinnu í skemmtanabransanum.
Ónefnd konan segist hafa verið komið fyrir í íbúð í Beverly Hills, þar sem henni var haldið í nokkra daga og nauðgað af þremur mönnum, þ.á.m af P. Diddy.
Konan, sem nú er 31 árs, heldur því fram að hún hafi komist í samband við Justin á árinu 2017 í gegnum samskiptaforritið Snapchat. Justin á að hafa beðið hana um nektarmyndir sem hún sendi honum. Nokkrum dögum síðar bauð Justin henni til Kaliforníu yfir helgi í þeim tilgangi að ræða frama hennar.
Justin sagðist geta komið henni áfram í gegnum tengsl sín.
Hún var sótt af bílstjóra á flugvöllinn í Los Angeles sem keyrði hana í áðurnefnda íbúð. Þar dvaldi hún fyrstu nóttina með Justin. Konan neytti fíkniefna sem Justin bauð henni og eftir það komu þrír grímuklæddir menn í íbúðina, einn af þeim sem hún telur hafa verið P. Diddy. Hún sagði m.a. að Justin hefði kallað hann „pabba“.
Þá var henni fylgt inn í svefnherbergi þar sem óverknaðurinn átti sér stað, frá eftirmiðdegi laugardags til sunnudags. Henni var svo skutlað á flugvöllinn á mánudeginum.
Lögfræðingar P. Diddy hafa neitað þessum ásökunum.