Vilja ekki að Kanye West komi fram

Viðvera Ye er sögð vanvirðing við fórnarlömb nasismans þar sem …
Viðvera Ye er sögð vanvirðing við fórnarlömb nasismans þar sem hann er sakaður um að ýta undir jákvætt viðhorf í garð stefnu sem tengd er einu myrkasta tímabili mannkynssögunnar. AFP/Jean-Baptiste Lacroix

Undirskriftasöfnun er farin af stað þar sem kallað er eftir því að borgarstjóri Bratislava í Slóvakíu komi í veg fyrir að Kanye West, þekktur sem Ye, komi fram sem aðalgestur á tónlistarhátíðinni Rubicon.

Þetta kemur fram í frétt AFP.

Viðvera Ye er sögð vanvirðing við fórnarlömb nasismans þar sem hann er sakaður um að ýta undir jákvætt viðhorf í garð stefnu sem tengd er einu myrkasta tímabili mannkynssögunnar. Þá er hann kallaður einn frægasti gyðingahatari heims og að óviðunandi sé að Bratislava sé eina borgin í Evrópu sem leyfi honum að koma fram.

Meira en 3.500 manns hafa skrifað undir listann og hafa stofnanir á borð við Peace for Ukraine og Cities for Democracy tekið í sama streng. Þess má geta að þann 8. maí, þegar 80 ár voru liðin frá ósigri nasismans, gaf Ye út lagið „Heil Hitler“ og var það bannað í Þýskalandi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hvatvísi gæti leitt til mistaka en líka óvæntra sigra. Treystu innsæinu og taktu ábyrgð á eigin ákvörðunum. Dagurinn býður upp á vöxt og reynslu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Eva Björg Ægisdóttir
4
Mohlin & Nyström
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hvatvísi gæti leitt til mistaka en líka óvæntra sigra. Treystu innsæinu og taktu ábyrgð á eigin ákvörðunum. Dagurinn býður upp á vöxt og reynslu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Eva Björg Ægisdóttir
4
Mohlin & Nyström
OSZAR »