Joycelyn Savage, unnusta tónlistarmannsins R. Kelly, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hún neitar ásökunum fjölskyldu sinnar um að hún sé fórnarlamb eða í haldi gegn vilja sínum.
Í myndbandi sem iTv birti á Youtube sagði Savage að það sem fjölskylda hennar væri að segja um samband hennar og Kelly væri allt lygi. Hún ítrekaði að hún væri hvorki kynlífsþræll né hefði hún verið heilaþvegin, eins og fjölskylda hennar hefur haldið fram.
„Ég er ekki haldin gegn vilja mínum. Ég er ekki kynlífsþræll og ég hef ekki verið heilaþvegin,“ sagði Savage og bætti við að hún og R. Kelly hefðu verið saman í tíu ár, trúlofuð síðustu þrjú ár og að þau ætla að gifta sig og stofna fjölskyldu.
Fjölskylda Savage hefur haldið því fram að hún sé enn undir áhrifum Kelly, sem nú afplánar 30 ára fangelsisdóm fyrir að hafa í áratugi leitt glæpastarfsemi sem gekk út á mansal og vændi. Fjölskyldan segir einnig að Savage hafi ekki haft bein samskipti við þau í nokkur ár. Savage svarar því með að fjölskyldusamband þeirra sé einfaldlega rofið.
Kelly var sakfelldur fyrir mansal og kynferðisbrot árið 2021 og árið eftir fyrir barnaníð. Þrátt fyrir það stendur Savage þétt við bakið á honum og biður aðdáendur um að halda áfram að biðja fyrir Kelly á meðan hann er í fangelsinu og heldur fast í vonina um að hann verði fljótlega látinn laus.
Hér að neðan má sjá færslu frá foreldrum Savage þar sem þau lýsa yfir áhyggjum dóttur sinnar: