Tónlistarmaðurinn Chris Brown neitaði í gær sök fyrir dómstóli í London vegna meints árásarmáls sem átti sér stað á skemmtistaðnum Tape í febrúar árið 2023. Brown mætti fyrir dómstóli í Southwark Crown Court í London klæddur dökkbláum jakkafötum eftir að hafa verið sakaður um að hafa reynt að valda alvarlegu líkamstjóni með því að slá tónlistarframleiðandann Abe Diaw með flösku.
Brown stendur einnig frammi fyrir ákærum um aðra líkamsárás og vopnaburð, en mun gefa afstöðu sína gagnvart þeim ákærum síðar. Rapparinn Omololu Akinlolu, betur þekktur undir sviðsnafninu Hoody Baby, neitaði einnig sök í sama máli.
Brown, sem er 36 ára, var handtekinn á hóteli í Manchester í síðasta mánuði þegar hann var við það að hefja tónleikaferð um Bretland. Hann á yfir höfði sér allt að 16 ára fangelsi verði hann fundinn sekur.
Þrátt fyrir ákæruna er hann á tónleikaferðalagi
Réttarhöldin hefjast 26. október árið 2026, en Brown mun aftur mæta fyrir dóm í júlí á þessu ári.
Þrátt fyrir ákærurnar hefur Brown hafið tónleikaferð sína. Hann hélt tónleika í Manchester síðasta sunnudag og mun koma fram á Tottenham Hotspur Stadium í London á laugardag, áður en ferðinni verður haldið áfram til Birmingham, Glasgow, Írlands og Bandaríkjanna.