Hið nýstofnaða Leikhús ókunnuga fólksins stígur á svið í Þjóðleikhúskjallaranum næsta vor með söngleikinn Kabarett. Félagið auglýsir um þessar mundir eftir leikurum, söngvurum og dönsurum í áheyrnarprufur. Umsóknarfrestur er til og með 25. júní.
Leikhúsið, sem stofnað var í vor, hefur það að markmiði „að framleiða vandaðar sviðslistir og bjóða upp á ný og spennandi tækifæri fyrir metnaðarfullt listafólk,“ eins og segir í tilkynningu. Þar kemur einnig fram að aðstandendur „trúi því að leikhúsið sé staður þar sem ókunnugt fólk úr ólíkum áttum sameinist með það fyrir augum að tengjast í gegnum sköpun. Þess vegna heitum við Leikhús ókunnuga fólksins.“
Stofnendur eru Bjartur Örn Bachmann leikstjóri, Helena Hafsteinsdóttir, Níels Thibaud Girerd, Arndís María Ólafsdóttir, Katrín Anna Karlsdóttir og Júlía Kolbrún Sigurðardóttir.
Hinn víðkunni söngleikur Kabarett verður frumsýndur í Þjóðleikhúskjallaranum í mars á næsta ári. Í tilkynningunni segir að hann „fjalli á öfgafullan hátt um samfélag á heljarþröm,“ og eigi brýnt erindi við samtímann. Sagan gerist á Kabarett-klúbbnum Kit-Kat í Berlín árið 1929.
Skráning í áheyrnarprufur fer fram á heimasíðunni okunnugir.is, þar sem einnig er að finna frekari upplýsingar um söngleikinn og Leikhús ókunnuga fólksins.
Nánari upplýsingar um prufurnar má finna hér!