Dóttir Bruce Willis deildi einlægri færslu

Rumer Willis ásamt föður sínum.
Rumer Willis ásamt föður sínum. Skjáskot/Instagram

Rumer Willis, elsta dóttir fyrrverandi leikarahjónanna Bruce Willis og Demi Moore, deildi einlægri færslu um föður sinn, stórleikarann Bruce Willis, sem þjáist af framheilabilun (e. frontotemporal dementia), á Instagram-síðu sinni í gærdag í tilefni af alþjóðlega feðradeginum.

Rumer, sem er 36 ára, sagðist meðal annars sakna löngu samtalanna þeirra en leikarinn, sem er hvað þekktastur fyrir hlutverk sín í kvikmyndum á borð við Die Hard, Pulp Fiction, The Sixth Sense, Death Becomes Her og Armageddongetur ekki lengur tjáð sig með orðum og á orðið erfitt með að þekkja andlit. 

„Í dag er erfitt. Ég finn fyrir djúpum sársauka í brjóstinu yfir því að geta ekki talað við þig og sagt þér allt sem ég er að gera og hvað er að gerast í lífi mínu. Að faðma þig og spyrja þig um lífið og sögurnar þínar, erfiðleikana og velgengnina. Ég vildi að ég hefði spurt þig fleiri spurninga á meðan þú gast enn sagt mér frá öllu þessu. En ég veit að þú myndir ekki vilja að ég væri sorgmædd í dag, svo ég mun reyna að vera bara þakklát og minna mig á hversu heppin ég er að þú sért pabbi minn og að þú sért enn hjá mér. Ég get enn haldið utan um þig og faðmað þig, kysst þig á kinnina og nuddað höfuðið á þér og sagt þér sögur. Ég get fylgst með því hvernig augun þín lýsast upp þegar þú sérð Louettu. Ég mun vera þakklát fyrir hvert augnablik sem ég á með þér.

Ég elska þig svo mikið, pabbi. Gleðilegan feðradag. Ég sendi ást til allra þeirra sem eru á sama báti og ég eða hafa misst feður sína, til einstæðra mæðra sem eru líka feðurnir, til verðandi barnsföður míns,” skrifaði Rumer við fallega myndaseríu.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ástvinur þinn gæti orðið órólegur vegna þess að gamall vinur úr fortíðinni leitar þig uppi. Réttlætiskennd þín er gott veganesti og þér farnast illa ef þú reynir að svæfa hana.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Moa Herngren
3
Torill Thorup
4
Steindór Ívarsson
5
Lucinda Riley
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ástvinur þinn gæti orðið órólegur vegna þess að gamall vinur úr fortíðinni leitar þig uppi. Réttlætiskennd þín er gott veganesti og þér farnast illa ef þú reynir að svæfa hana.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Moa Herngren
3
Torill Thorup
4
Steindór Ívarsson
5
Lucinda Riley
OSZAR »