Brasilíska þungarokkshljómsveitin Sepultura hélt sína fyrstu tónleika á Íslandi í vikunni og væntanlega um leið þá síðustu en bandið er á kveðjutúr sínum, Celebrating Life Through Death, eftir 40 ár í eldlínu málmsins. Þeir fóru fram í Valsheimilinu í Reykjavík að viðstöddu fjölmenni.
„Skeggbragar voru uppi um alla veggi er Sepultura setti í fimmta gírinn á miðvikudaginn og það í fyrsta lagi. Það var forvitnilegt að líta yfir salinn, c.a. 85% karlmenn, velflestir á miðjum aldri, og svartklæddir allir sem einn. Grái TDK-bolurinn minn var eins og skræpóttur Hawaii-bolur í samanburðinum. Ég þekkti marga gamla bárujárnshunda þarna og við heilsuðumst með virktum, glottum og sýndum hornin. Það var árshátíðarandi yfir,“ segir Arnar Eggert Thoroddsen í umsögn um tónleikana í laugardagsútgáfu Morgunblaðsins.
Efnisskráin var þétt og allt hækkað upp í ellefu undir lokin með riffaparadísunum „Territory“ og „Refuse/Resist“, að sögn Arnars Eggerts. „Ég meina, þvílík riff! Þvílíkur þungi og þvílíku glæsiheitin! Listaverk, það er bara þannig. Endað var með frábæru „Arise“ og í uppklappinu var trukkað í gegnum „Ratamahatta“ og „Roots Bloody Roots“.
Að hans mati er Derrick Green algerlega frábær söngvari og sviðsmaður og vafði málmelskandi Íslendingunum um fingur sér frá fyrstu nótu til hinnar síðustu. „Sjarmerandi maður og gjafmildur og ekki átti Andreas Kisser síðri útspil í þessum fræðunum. Brosandi, gefandi sér tíma til að tala og það andaði ró- og góðsemd af sviðinu þrátt fyrir bylminginn allan og graðhestarokkið eins og eldri kynslóðin myndi segja. Sepultura gekk af sviði, reisnarfullir, alvöru menn, og á skjánum fyrir aftan þá stóð „Takk Fyrir Ísland“. Fallegt.“
Eggert Jóhannesson ljósmyndari Morgunblaðsins var á vettvangi og tók þessar skemmtilegu myndir af hvoru tveggja, Sepultura sjálfri og Sepul-þjóðinni.