Kyle Ashman, einn af þátttakendum í breska raunveruleikaþættinum Love Island, hefur ákveðið að draga sig úr keppni rétt fyrir frumsýningu nýjustu þáttaraðarinnar sem hefst næstkomandi mánudag.
Í tilkynningu frá ITV segir að hinn 23 ára gamli Ashman yfirgefi þáttinn af persónulegum ástæðum. Ákvörðunin kemur í kjölfar frétta í breskum fjölmiðlum um að Ashman hafi verið handtekinn í tengslum við alvarlega líkamsárás þar sem sveðju var beitt sem vopni.
Fyrr á árinu réðust grímuklæddir árásarmenn með sveðju inn í minningarathöfn í The White Eagle Club í Stafford með það markmið að ráðast á 38 ára gamlan fjölskylduföður. Maðurinn var alvarlega særður eftir árásina og missti næstum því handlegg við árásina. Hann var fluttur á sjúkrahús þar sem hann dvaldi í um tvær vikur.
Ashman var handtekinn ásamt tveimur öðrum mönnum vegna málsins en lögregla sleppti honum síðar án ákæru þar sem rannsókn leiddi ekki í ljós að hann hefði komið að árásinni.
Í samtali við MailOnline sagði Kyle:
„Ég vann að fullu með lögreglunni í þessari rannsókn og gerði það mjög skýrt að ég hefði ekkert með þetta mál að gera. Ég er ekki ofbeldisfull manneskja og allar slíkar ásakanir eru rangar.“
Framleiðendur Love Island sögðu að þau hefðu ekki verið upplýst um málið fyrr en fjölmiðlar vöktu athygli á því og ákvörðun hefði verið tekin um að Ashman ætti ekki að taka þátt í þættinum til að gefa honum svigrúm til að takast á við málið og segja sína hlið.
Lögreglan í Staffordshire hefur staðfest að rannsókn standi enn yfir en Ashman sé laus allra mála.