Minntist eiginmannsins í fallegri færslu

Terri og Steve Irwin.
Terri og Steve Irwin. Samsett mynd

Ekkja áströlsku dýralífsstjörnunnar Steve Irwin, Terri Raines Irwin, minntist eiginmanns síns í fallegri færslu á Instagram-síðu sinni í morgunsárið í tilefni af því að 33 ár eru liðin frá því að þau gengu í það heilaga.

Terri deildi fallegri mynd af þeim hjónum sem tekin var á brúðkaupsdaginn, 4. júní 1992, í borginni Eugene í Oregon.

„Í dag, fyrir 33 árum síðan, giftumst við Steve í kirkju ömmu minnar í Oregon. Það var upphafið að hamingjuríka ævintýri mínu.

Á hverjum degi vakna ég með fallegar minningar, svo mikla ást í hjarta mínu og loforð um að halda áfram hans ótrúlegu arfleifð. Ég er svo sannarlega blessuð,” skrifar hún við færsluna sem fjölmargir hafa lækað við.

Steve lést af slysförum þann 4. september 2006. Hann var 44 ára að aldri.

Irwin-fjölskyldan hefur haldið minningu Steve Irwin og arfleifð á lofti.
Irwin-fjölskyldan hefur haldið minningu Steve Irwin og arfleifð á lofti. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það getur reynt á þolinmæðina að þurfa að endurtaka sjálfan sig oft svo allir skilji. Mundu að öllu gamni fylgir nokkur alvara.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Arnaldur Indriðason
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það getur reynt á þolinmæðina að þurfa að endurtaka sjálfan sig oft svo allir skilji. Mundu að öllu gamni fylgir nokkur alvara.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Arnaldur Indriðason
OSZAR »