Meghan Markle, hertogaynjan af Sussex, birti sætar myndir af dóttur sinni, Lilibet Díönu, á Instagram-síðu sinni fyrr í dag, en tilefnið er fjögurra ára afmæli stúlkunnar.
Markle deildi tveimur svarthvítum myndum af þeim mæðgum með fylgjendum sínum sem sýna hvernig stúlkan hefur vaxið og dafnað í fangi móður sinnar.
„Til hamingju með afmælið, elsku fallega stelpan okkar! Fyrir fjórum árum kom hún inn í líf okkar - og hver dagur hefur verið bjartari og betri vegna þess. Hjartans þakkir til allra sem hafa sent kveðjur á þessum sérstaka degi,“ skrifaði Markle við færsluna.
Markle birtir ekki mikið af myndum af börnum hennar og Harry Bretaprins, sérstaklega myndir sem sýna andlit þeirra, en Harry er sagður ósáttur við slíkar myndbirtingar.
Markle og Harry Bretaprins gengu í hjónaband við hátíðlega athöfn þann 19. maí 2018. Tæpu ári síðar tóku þau á móti frumburði sínum, syninum Archie Harrison. Lilibet Díana fæddist tveimur árum seinna.