Leikkonan Blake Lively er sögð gera tilraunir til að taka út fullyrðingar þess efnis að leikarinn og leikstjórinn Justin Baldoni hafi valdið henni tilfinningalegri vanlíðan á meðan á gerð kvikmyndarinnar It Ends With Us stóð, samkvæmt dómskjölum sem tímaritið Page Six hefur undir höndum.
Þessi vending kemur beint í kjölfar þess að lögfræðingar Baldonis óskuðu eftir að hún skrifaði undir samþykki er varðaði aðgang þeirra að læknis- og geðheilbrigðisgögnum hennar.
Lögfræðiteymi Baldonis áréttar mikilvægi gagnanna samanber ásakanir leikkonunnar um að Baldoni hafi valdið henni verulegri andlegri vanlíðan, líkt og fram kom í lögsókn á hendur honum í desember 2024.
Rétturinn mun skera úr um hvort beiðni Lively verði samþykkt.
Lögfræðingar Lively segja hins vegar opinberlega að teymi Baldonis leitist eftir fjölmiðlaathygli og að leikkonan muni halda andlegri vanlíðan til streitu sem hluta af fjölda annarra krafna í máli hennar.
Lively, sem er 37 ára, sakar Baldoni, 41 árs, um að hafa valdið hjá henni alvarlegu tilfinningalegu áfalli, sársauka, niðurlægingu, skömm, andlegum kvölum og vonbrigðum með hegðun sinni við gerð áðurgreindrar kvikmyndar. Á hann m.a. að hafa sýnt henni nektarmyndir af öðrum konum og rætt um klámfíkn sína frá fyrri tíð.
Hún sakaði hann einnig um tilraun til að eyðileggja orðspor sitt í kjölfar ásakananna. Síðar greindi Lively einnig frá að börn hennar James, tíu ára, Inez, átta ára, Betty fimm ára, og Olin, tveggja ára, hefðu einnig orðið fyrir áfalli vegna þessa.