Rapparinn Cardi B birti um helgina myndasyrpu á Instagram þar sem hún staðfesti formlega að hún sé komin í ástarsamband með NFL-stjörnunni Stefon Diggs.
Á myndunum má sjá parið kúra saman um borð í snekkju, stutt myndband þar sem Cardi B dansar fyrir Diggs, auk mynda af glæsilegum blómvöndum sem hún virðist hafa fengið að gjöf frá honum.
Orðrómar um að Cardi B og Diggs væru farin að stinga saman nefjum kviknuðu í upphafi árs og jukust enn frekar þegar parið sást opinberlega bæði á NBA-leik í vor og á sjálfan Valentínusardaginn. Allt benti því til þess að Cardi B hefði fundið ástina á ný.
Á sama tíma og nýr kafli hófst í ástarlífi Cardi B stendur hún í stormasömu skilnaðarferli við fyrrverandi eiginmann sinn, rapparann Offset. Cardi B sótti fyrst um skilnað sumarið 2024, en það var ekki í fyrsta sinn sem samband þeirra stóð á brauðfótum. Fylgjendur þeirra á Instagram hafa ekki farið varhluta af netstríði sem ríkir þeirra á milli. Cardi B hefur meðal annars sakað Offset og móður hans um þjófnað og um að vanrækja börn þeirra, auk þess hafa þau bæði sakað hvort annað um meint framhjáhald meðan á sambúðinni stóð.
Cardi B virðist staðráðin í að snúa blaðinu við og hefja nýtt tímabil í lífi sínu eftir skilnaðarferlið. Í Instagram-færslu sinni gaf hún sjálf til kynna að nýr kafli væri að hefjast „Chapter 5... Hello Chapter 6,“ skrifaði hún.