Það fór eflaust ekki fram hjá neinum að borgin logaði af hvítum stúdentahúfum á laugardaginn var þegar nýir stúdentar voru krýndir.
Mbl.is tók saman lista yfir nokkra glæsilega nemendur sem luku stúdentsprófi við Verzlunarskóla Íslands að þessu sinni, en framtíðin er björt hjá vonarstjörnum þjóðarinnar.
Rakel María Gísladóttir er elsta dóttir leikarahjónanna Nínu Daggar Filippusdóttur og Gísla Arnar Garðarssonar. Hún steig aðeins átta ára fyrst á stóra svið Þjóðleikhússins í uppsetningunni Í hjarta Hróa hattar og hefur síðan þá tekið þátt í ýmsum leikhúsverkefnum.
Rut Heiðarsdóttir, dóttir Heiðars Guðjónssonar, fjárfestis og fyrrverandi forstjóra Sýnar og Sigríðar Sólar Björnsdóttur viðskiptafræðings.
Heiðar þykir mjög klókur í viðskiptum og seldi einmitt 12,7% hlut sinn í Sýn sumarið 2022. Síðan þá hefur virði Sýnar rýrnað um rúmlega helming.
Bergþór Ingi Sverrisson er miðjubarn grínistans Sverris Þórs Sverrissonar, eða Sveppa Krull og Írisar Öspar Bergþórsdóttur, mannauðsstjóra hjá Elkem. Það verður forvitnilegt að sjá hvort þessi ungi maður fetar í fótspor föður síns sem grínisti og skemmtikraftur þjóðarinnar.
Eva Sóley Sigsteinsdóttir er dóttir Sigsteins Grétarssonar, forstjóra Baader Ísland (áður Skagans 3X), og Stellu Stefánsdóttur viðskiptafræðings. Hún tók virkan þátt í útgáfu Verzlunarskólablaðsins öll þrjú árin í skólanum og gegndi stöðu ritstjóra á lokaárinu.
Krummi Arnar Bang er sonur frumkvöðulsins og plötusnúðsins Margeirs Steinars Ingólfssonar og Örnu Gerðar Bang alþjóðastjórnmálafræðings. Krummi fagnaði meðal fjölskyldu og vina og útskrifaðist með stæl að sögn föður hans í Facebook-færslu í tengslum við útskriftina.
Hildur K. Traustadóttir, dóttir Jóns Trausta Ólafssonar, forstjóra Öskju, og Eddu Bjarkar Kristjánsdóttur, mannauðsstjóra Húsasmiðjunnar. Hildur skartaði glæsilegum kjól frá Rotate Birger Christensen á útskriftardaginn sem fór henni afar vel.