Gaf eiginmanninum einn á lúðurinn

Hjónin virtust í góðu skapi er þau yfirgáfu Víetnam fyrr …
Hjónin virtust í góðu skapi er þau yfirgáfu Víetnam fyrr í dag. Ljósmynd/AFP

Brigitte Macron, forsetafrú Frakklands, virtist eitthvað ósátt við eiginmann sinn, Emmanuel Macron Frakklandsforseta, ef marka má myndskeið sem náðist af forsetahjónunum þegar þau lentu á flugvellinum í Hanoi í Víetnam á sunnudag.

Brigitte, sem er 72 ára, sást ýta eiginmanni sínum, hinum 47 ára gamla Emmanuel, þegar þau voru við það að yfirgefa flugvélina.

Frakklandsforseta var brugðið þegar Brigitte sló til hans, ef marka má svipbrigði hans á myndskeiðinu, en forsetinn reyndi að létta andrúmsloftið með því að brosa og veifa til blaðamanna og víetnamskra embættismanna sem biðu forsetahjónanna við lendingu. 

Forsetahjónin virtust eitthvað ósátt er þau lentu á flugvellinum í …
Forsetahjónin virtust eitthvað ósátt er þau lentu á flugvellinum í Hanoi á sunnudag. Ljósmynd/AFP

Myndskeiðið hefur, eins og við mátti búast, verið í mikilli dreifingu á samfélagsmiðlum síðustu klukkustundir og hafa talsmenn forsetahjónanna reynt að þagga málið niður og haldið því fram að um saklausar hjónaerjur hafi verið að ræða.

Brigitte og Emmanuel virðast hafa náð að vinna úr deilum sínum, en forsetahjónin yfirgáfu Víetnam fyrr í dag og leiddust upp tröppurnar að flugvélinni, sátt og sæl.

Brigitte og Emmanuel Macron voru kátari í fasi eru þau …
Brigitte og Emmanuel Macron voru kátari í fasi eru þau gengu hönd í hönd upp tröppurnar að flugvélinni fyrr í dag. Ljósmynd/AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Einhver ráðgáta heldur fyrir þér vöku en lausnarinnar er að leita þar sem síst skyldi. Láttu innsæið ráða; þú veist hvað er rétt.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Arnaldur Indriðason
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Einhver ráðgáta heldur fyrir þér vöku en lausnarinnar er að leita þar sem síst skyldi. Láttu innsæið ráða; þú veist hvað er rétt.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Arnaldur Indriðason
5
Torill Thorup
OSZAR »