Mikil umsvif eru nú í kvikmyndaheiminum á Íslandi vegna fjögurra stórra erlendra verkefna sem tekin eru hér á landi. Eitt þeirra gæti orðið umfangsmesta erlenda kvikmyndaverkefnið hér á landi frá upphafi.
Tökur hófust hér á landi í vikunni á sjónvarpsþáttunum Avatar: The Last Airbender. Um er að ræða leikna þætti sem byggðir eru á teiknimyndaþáttum sem gerðir voru fyrir Nickelodeon fyrir um tveimur áratugum. Fyrsta þáttaröðin fór í loftið á Netflix snemma árs 2024 og naut talsverðrar hylli. Yfir 40 milljónir áhorfenda horfðu á þættina fyrstu tvær vikurnar eftir frumsýningu. Í kjölfarið var tilkynnt að gerðar yrðu tvær þáttaraðir til viðbótar. Tökum á annarri þáttaröð er lokið en Ísland er fyrsti viðkomustaður tökuliðsins í þriðju þáttaröðinni.
Það mun eflaust gleðja marga kvikmyndaáhugamenn að leikstjórinn Denis Villeneuve hefur ákveðið að taka hluta kvikmyndarinnar Dune: Messiah hér á landi. Tökur munu fara fram síðar á þessu ári en ekki hefur fengist staðfest hvenær.
Þetta verður þriðja Dune-myndin og verður hún byggð á bók Franks Herberts frá 1969. Sagan gerist tólf árum eftir atburðina í annarri Dune-myndinni. Ekkert hefur verið staðfest um hvaða leikarar verða í myndinni en samkvæmt erlendum miðlum er búist við að öll stóru nöfnin mæti aftur til leiks.
Í leikarahópnum hafa verið nöfn á borð við Timothée Chalamet, Zendaya, Robert Pattinson, Josh Brolin, Léa Seydoux, Christopher Walken, Jason Momoa og Javier Bardem.
Eins og komið hefur fram í Morgunblaðinu er óskarsverðlaunaleikstjórinn Christopher Nolan væntanlegur til landsins í júní. Þá fara fram tökur á stórmynd hans The Odyssey, sem byggð er á Ódysseifskviðu, og í aðalhlutverkum verða margir af vinsælustu leikurum í Hollywood í dag. Þar á meðal eru Matt Damon, í hlutverki Ódysseifs, Tom Holland, Anne Hathaway, Zendaya, Lupita Nyong'o, Robert Pattinson og Charlize Theron.
Mörg hundruð manns koma að tökunum sem verða afar umfangsmiklar, svo umfangsmiklar að heimildarmenn blaðsins telja jafnvel mögulegt að þær slái við Flags of our Fathers sem til þessa hefur talist mannfrekasta kvikmyndaverkefnið hér á landi.
Nýverið fóru hér fram tökur á kvikmyndinni Supergirl: Woman of Tomorrow. Myndin hverfist um Supergirl sem ættuð er úr heimi DC Comics og verður hún önnur myndin í DC-heiminum svokallaða. Tökur á myndinni fóru fram í Bretlandi í vetur og lauk þeim með nokkrum tökudögum hér.
Framleiðslufyrirtækið TrueNorth heldur utan um framleiðsluna á öllum þessum fjórum verkefnum hér á landi. Ekki náðist í Leif B. Dagfinnsson, framleiðanda hjá TrueNorth, við vinnslu fréttarinnar.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.