Björgvin Franz æfði sig í 30 ár

Björgvin Franz leikur Elsu Lund í stórsýningunni Þetta er Laddi.
Björgvin Franz leikur Elsu Lund í stórsýningunni Þetta er Laddi. Ljósmynd/Borgarleikhúsið

Í nýju stórsýningunni Þetta er Laddi stígur leikarinn Björgvin Franz Gíslason á svið sem hin litríka Elsa Lund, hlutverk sem hann segist hafa undirbúið sig fyrir í meira en 30 ár og hefur nú verið tilnefndur til Grímuverðlaunanna fyrir leikinn.

Ást við fyrstu sýn 

Björgvin var aðeins tíu ára gamall þegar hann sá Elsu Lund verða til á heimili foreldra sinna, leikara­hjónanna Eddu Björgvinsdóttur og Gísla Rúnars Jónssonar. 

„Ég man eftir þeim niðri í kjallara að prófa gervi eða raddir og svo skrifa allt grínið niður jafnóðum,“ rifjar hann upp.

„Laddi var gjarnan á staðnum að vinna með þeim grínefni og ég gleymi aldrei þegar Elsa Lund mætti á svæðið: Guð minn góður, ég elskaði hana og ég fór strax að reyna að herma eftir henni.“

Björgvin var aðeins tíu ára gamall þegar hann sá fyrst …
Björgvin var aðeins tíu ára gamall þegar hann sá fyrst Elsu Lund verða til. Ljósmynd/Borgarleikhúsið

Dreymt um hlutverkið í þrjátíu ár

Heimurinn fékk fyrstu sýn á Björgvin sem Elsa á grímubúningaballi 5. bekkjar Austurbæjarskóla.

„Í raun fékk ég svo mikla þráhyggju af Elsu að ég heimtaði að leika hana á grímubúningaballi 5. bekkjar í Austurbæjarskóla. Ég reddaði mér hárkollu, leðurjakka, gervitönnum frá mömmu og perlufesti hjá ömmu. Svo málaði ég fjólubláan augnskugga, mætti á svæðið og vann keppnina.“

Eftir þennan flutning var ekki aftur snúið og því mætti segja að Björgvin sé búinn að vera að undirbúa mig fyrir hlutverk Elsu í meira en 30 ár.

Björgvin lék Elsu Lund á grímubúningaballi 5. bekkjar í Austurbæjarskóla.
Björgvin lék Elsu Lund á grímubúningaballi 5. bekkjar í Austurbæjarskóla. Ljósmynd/Borgarleikhúsið

Hlutverkið fær lof og tilnefningu

Áralöng þráhyggja Björgvins skilaði sér þegar hann var nýverið tilnefndur til Grímuverðlauna sem leikari ársins í aukahlutverki fyrir túlkun sína á Elsu Lund. Leikritið Þetta er Laddi hlaut alls þrjár tilnefningar og verður sýnd áfram á stóra sviði Borgarleikhússins á vormisseri.

Þetta er Laddi verður sýnd áfram á Stóra sviði Borgarleikhússins …
Þetta er Laddi verður sýnd áfram á Stóra sviði Borgarleikhússins á vormisseri. Ljósmynd/Borgarleikhúsið
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er nauðsynlegt að meta málin með reglulegu millibili. Ekki nálgast óvininn á ógnandi hátt. Reyndu að lenda ekki í átökum við aðra.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Colleen Hoover
3
Torill Thorup
4
Lotta Luxenburg
5
Satu Rämö
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er nauðsynlegt að meta málin með reglulegu millibili. Ekki nálgast óvininn á ógnandi hátt. Reyndu að lenda ekki í átökum við aðra.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Colleen Hoover
3
Torill Thorup
4
Lotta Luxenburg
5
Satu Rämö
OSZAR »