Hailey Bieber svarar skilnaðarsögum í opinskáu viðtali

Kanadíski tónlistarmaðurinn Justin Bieber og fyrirsætan Hailey Bieber þegar þau …
Kanadíski tónlistarmaðurinn Justin Bieber og fyrirsætan Hailey Bieber þegar þau mættu til 64. Grammy-verðlaunahátíðarinnar í apríl 2022. ANGELA WEISS / AFP

Viðskiptakonan og fyrirsætan Hailey Bieber sendir „sambandsspekúlöntum“ samfélagsmiðlanna kalda kveðju í viðtali í tímaritinu Vogue sem birtist í dag. Hún er orðin dauðþreytt á innantómum orðróm þess efnis að hún og tónlistarmaðurinn Justin Bieber séu að skilja.

„Jæja, ég hélt að sjö ár af því hefðu þegar verið [búin], en það er það ekki,“ segir hún um skilnaðarsögurnar sem hafa verið á kreiki nánast síðan þau giftu sig árið 2018.

„Þú myndir halda að eftir að hafa eignast barn, myndi fólk kannski fara að einbeita sér að öðru, slaka aðeins á, en nei,“ bætir hún við. „Svo ég giska á að þessar tíkur muni verða reiðar.“ 

Hailey og Justin urðu foreldrar í fyrsta sinn þegar þau eignuðust soninn Jack Blues í ágúst í fyrra. Hún viðurkennir að hún sé orðin mun herskárri eftir að hún varð móðir. Þrátt fyrir að svara þeim sem fara yfir mörkin hennar viðurkennir hún þó að verða viðkvæm á stundum. 

„Ég græt meira en áður.“

Hjónin endurnýjuðu heitin í maí í fyrra hefur en samt hefur internetið verið stútfullt af sögusögnum og órökstuddum vangaveltum um hugsanlegan yfirvofandi skilnað þeirra. Í mars urðu fylgjendur þeirra á Instagram vissir um að þau væru hætt saman fyrir fullt og allt þegar leit út fyrir að Hailey væri hætt að fylgja Justin á miðlinum. Það reyndist hins vegar vera villa í forritinu.

View this post on Instagram

A post shared by Vogue (@voguemagazine)

Page Six

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er nauðsynlegt að meta málin með reglulegu millibili. Ekki nálgast óvininn á ógnandi hátt. Reyndu að lenda ekki í átökum við aðra.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Colleen Hoover
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Torill Thorup
5
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er nauðsynlegt að meta málin með reglulegu millibili. Ekki nálgast óvininn á ógnandi hátt. Reyndu að lenda ekki í átökum við aðra.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Colleen Hoover
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Torill Thorup
5
Lotta Luxenburg
OSZAR »