Hlynur, Saga og Sverrir á rauða dreglinum

Saga, Hlynur, Sverrir og börn Hlyns þrjú.
Saga, Hlynur, Sverrir og börn Hlyns þrjú. AFP/Sameer Al-Doumy

Hlynur Pálmason kvikmyndaleikstjóri frumsýndi kvikmynd sína Ástin sem eftir er á kvikmyndahátíðinni í Cannes í gær, sunnudaginn 18. maí. 

Aðalleikarar myndarinnar Saga Garðarsdóttir og Sverrir Guðnason stilltu sér upp á rauða dreglinum ásamt Grími, Þorgils og Ídu Mekkín Hlynsbörnum, en þau fara einnig með hlutverk í myndinni. 

Með í hópnum eru einnig Ingvar E. Sigurðsson sem fer jafnframt með hlutverk í myndinni, framleiðendurnir Anton Máni Svansson og Katrin Pors, sem og danski leikarinn Anders Mossling. 

Katrin Pors, Ingvar Sigurðsson, Sverrir Guðnason, Ída Mekkin Hlynsdóttir, Hlynur …
Katrin Pors, Ingvar Sigurðsson, Sverrir Guðnason, Ída Mekkin Hlynsdóttir, Hlynur Pálmason, Grímur Hlynsson, Þorgils Hlynsson, Saga Garðarsdóttir og Anton Máni Svansson. AFP/Valery Hache

Um kvikmyndina segir í kynningartexta: „Ástin sem eftir er fangar ár í lífi fjölskyldu þar sem foreldrarnir stíga fyrstu skrefin í átt að skilnaði. Á fjórum árstíðum fylgjumst við með hversdagslífi fjölskyldumeðlima í gegnum óvænt, fyndin og hjartnæm augnablik sem endurspegla hið breytta samband þeirra.“ 

Hlynur hefur áður hlotnast sá heiður að frumsýna kvikmynd á aðaldagskrá hátíðarinnar í Cannes. Fyrir þremur árum heimsfrumsýndi hann Volaða land í Un Certain Regard-flokki hátíðarinnar. Þá heimsfrumsýndi Hlynur einnig kvikmyndina Hvítan, hvítan dag í Semaine de la Critique í Cannes 2019.

Hlynur smellir af.
Hlynur smellir af. AFP/Sameer Al-Doumy
Anton Máni Svansson, Anders Mossling, Saga Garðarsdottir, Þorgils Hlynsson, Hlynur …
Anton Máni Svansson, Anders Mossling, Saga Garðarsdottir, Þorgils Hlynsson, Hlynur Pálmason, Ída Mekkín Hlynsdottir, Grímur Hlynsson, Sverrir Guðnason, Ingvar Sigurðsson og Katrin Pors. AFP/Al-Doumy
Hlynur ásamt börnum sínum þremur.
Hlynur ásamt börnum sínum þremur. AFP/Valery Hache
Hlynur Pálmason leikstjóri.
Hlynur Pálmason leikstjóri. AFP/Valery Hache






mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er nauðsynlegt að meta málin með reglulegu millibili. Ekki nálgast óvininn á ógnandi hátt. Reyndu að lenda ekki í átökum við aðra.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Colleen Hoover
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Torill Thorup
5
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er nauðsynlegt að meta málin með reglulegu millibili. Ekki nálgast óvininn á ógnandi hátt. Reyndu að lenda ekki í átökum við aðra.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Colleen Hoover
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Torill Thorup
5
Lotta Luxenburg
OSZAR »