„Það var ekki ein einasta dauð stund“

Hérna eru vinkonurnar Marie, Unnur Ósk og Sara Kristín að …
Hérna eru vinkonurnar Marie, Unnur Ósk og Sara Kristín að njóta sólarinnar í Kyoto. Ljósmynd/Aðsend

Unnur Ósk Kristinsdóttir er þrítug og hefur nýtt síðastliðin ár vel í alls kyns ferðalög. Í fyrra fór hún í ferð drauma sinni til Japans ásamt tveimur vinkonum sínum. Þær ferðuðust til nokkurra borga og náðu að gera ótrúlega mikið, en ferðin stóð yfir í um tæpar þrjár vikur.

„Ég flutti til Kaupmannahafnar síðastliðið haust og hef verið að njóta lífsins þar síðan. Ég vinn hjá Storytel. Það er algjör draumur að vinna í nálægð við bækur alla daga. Ég hef ferðast nokkuð mikið og elska að upplifa nýja menningu og framandi staði. Ég hef aldrei farið í hefðbundna reisu en ég reyni að fara í minni ævintýraferðir eins oft og ég get. Fyrir tveimur árum eyddi ég mánuði í Suður-Ameríku, síðasta sumar fór ég til Georgíu og í vetur fór ég í brimbrettaferð til Marokkó. Þannig að ferðalög eru mjög stór ástríða hjá mér, og í maímánuði í fyrra fór ég í æðislega vinkonuferð til Japans!“

Það er ekki ónýtt að fara í skvísuferð alla leið …
Það er ekki ónýtt að fara í skvísuferð alla leið til Japans. Ljósmynd/Aðsend

Hvernig ákváðu þið að fara í frí til Japans?

„Við fórum þrjár vinkonur saman, en við kynntumst í þegar við vorum allar í skiptinámi í Ástralíu árið 2017 og höfum ferðast mikið saman síðan. Hugmyndin um Japan kom upp stuttu eftir að við kynntumst og síðan þá hefur þetta alltaf verið á listanum okkar. Þannig að þetta var ekki spurning hvort við færum, heldur hvenær. Mér hefur alltaf þótt Japan virka spennandi, þar er einstök blanda af mikilli sögu, framandi menningu, ótrúlegri náttúru, geðveikum borgum og fullkomnu lestarkerfi. Og svo auðvitað; sushi, Asahi bjór og karíókí, það verður ekki mikið betra en það.“

Marga dreymir um að fara til landisns, einkum vegna einstakrar …
Marga dreymir um að fara til landisns, einkum vegna einstakrar menningar. Ljósmynd/Aðsend

Hvert fóru þið?

„Við byrjuðum í Tokyo og vorum þar í þrjár nætur til að venja á okkur tímamismuninn. Við gerðum það samt ekki því við vorum of spenntar að fara út og skoða. Við sáum ótrúlega margt fyrsta daginn en fundum svo fyrir þreytunni næstu daga eftir það. Svo fórum við til Hakone þar sem við gistum á hefðbundnu japönsku Ryokan- gistiheimili með Onsen-náttúrulaugum, það var algjör afslöppun. Planið var að reyna að sjá fjallið Fuji frá Hakone, en skýin ákváðu að stríða okkur. Frá Hakone fórum við með hraðlest til Kyoto þar sem við sáum Aoi Matsuri skrúðgönguna fyrir algjöra tilviljun. Það var eins og að fara í tímavél að sjá hana en á þessum degi eru margar hefðir sem eru yfir 1.500 ára gamlar.

Kyoto var æðisleg og þar smökkuðum við líka Okonomiyaki, sem er eitt það besta sem ég hef borðað. Það er pönnukaka og á hana getur verið sett alls kyns grænmeti, kjöt og sósur. Við fórum á veitingastað sem heitir Gion Tanto og við þurftum að bíða í einn og hálfan klukkutíma þar eftir borði, en svo var þetta eldað fyrir framan okkur, og biðin var hverrar mínútu virði,“ segir Unnur Ósk.

Unnur var yfir sig hrifin af matnum í Japan og …
Unnur var yfir sig hrifin af matnum í Japan og prófaði marga ólíka rétti. Ljósmynd/Aðsend

„Eftir Kyoto héldum við til Hiroshima, borg sem var ótrúlegt að upplifa. Það var magnað að sjá hvernig borgin hefur verið endurbyggð og fórum á friðarsafnið í borginni sem fór ótrúlega ítarlega og fallega yfir alla sögu borgarinnar og hörmunganna sem hafa dunið þar á. Þar voru meðal annars myndir af fólkinu sem dó, sögur þeirra sagðar og jafnvel fötin sem þau voru í þegar sprengjan sprakk. Þetta var ótrúlega áhrifaríkt að sjá og við komum þaðan út með mikla sorg í hjartanu og endurnýjaða aðdáun á borginni. Við fórum líka í dagsferð í Miyajima þjóðgarðinn en héldum svo til Osaka, þar sem við eyddum fjórum dögum, fórum meðal annars í hefðbundna te athöfn og lærðum meira um sögu borgarinnar,“ segir Unnur.

Hér er Unnur Ósk í te athöfn, en hún og …
Hér er Unnur Ósk í te athöfn, en hún og vinkonurnar tvær voru allar sammála um það að, njóta landins og dýfa sér í japönsku menninguna. Ljósmynd/Aðsend

„Við kíktum líka til Nara þjóðgarðinn þar sem við klöppuðum dádýrum og nutum stórfenglegrar náttúru. Enduðum svo á að fara aftur til Tokyo og eyða síðustu dögunum í að fara á söfn, borða enn meiri góðan mat og syngja meira karaoke. Við gistum þá á hylkjahóteli, í öðru hverfi borgarinnar, í þetta skiptið. Það var ótrúlega áhugaverð upplifun að gista í lokuðu hylkjasvefnherbergi, og það var ótrúlega gaman að sjá aðra hluta borgarinnar, sem er ennþá stærri en ég hefði getað ímyndað mér. Við fórum út um allt með almenningssamgöngum og á milli borga með hraðlestunum. Þær eru í dýrari kantinum en það var allt svo sannarlega þess virði! Að fara yfir 450 kílómera á tveimur tímum var ótrúlegt og þetta hraðlestarkerfi gerði okkur kleift að sjá mikið af landinu, á kannski frekar stuttum tíma.“

Það fór vel um stöllurnar, í sitt hvoru herberginu á …
Það fór vel um stöllurnar, í sitt hvoru herberginu á þessu hylkjahóteli, en vinsældir slíkra hótela fara vaxandi með árunum í Asíu. Ljósmynd/Aðsend

Hvaða staðir stóðu upp úr og af hverju?

„Kyoto var algjörlega einstök, þá verð ég að nefna menninguna, það er mikil saga þar og andrúmsloftið var öðruvísi en annars staðar. Hiroshima hafði líka gríðarleg áhrif og setti marga hluti í nýtt samhengi. En ferðin fór fram úr öllum væntingum, það var ekki ein einasta dauð stund í Japan,“ segir Unnur.

Stelpurnar áttu frábæran dag í borginni Nara, þar sem þessi …
Stelpurnar áttu frábæran dag í borginni Nara, þar sem þessi dádýr eiga heima. Ljósmynd/Aðsend

Hefðuð þið viljað plana ferðina öðruvísi?

„Já, ef við hefðum haft lengri tíma hefðum við mögulega farið á fleiri staði. Við gengum 20-30 kílómetra á dag, þannig að undir lokin vorum við orðnar ansi þreyttar. Það hefði verið gott að eiga fleiri daga til að slaka aðeins á. Við fórum líka bara á lítið svæði landsins en það hefði líka verið ótrúlega gaman að komast víðar, á aðeins ótroðnari slóðir, þar sem það var allt morandi í ferðalöngum allsstaðar sem við fórum. Við heimsóttum ótrúlega mörg musteri og undir lokin vorum við orðnar örlítið mettaðar af þeim. Þau voru öll ótrúlega falleg, en renna sum svolítið saman í minningunni,“ segir hún.

Hún var ánægð með þetta aldagamla hof í Hiroshima.
Hún var ánægð með þetta aldagamla hof í Hiroshima. Ljósmynd/Aðsend

Hvað finnst þér áhugaverðast við Japan?

„Ótrúlegur matur! Við prófuðum allan skalann, dýra og fína veitingastaði, lítil veitingahús og snarlið í 7/11, og það var ekki ein slæm máltíð. Okonomiyaki, ramen, kobe nautakjöt, sushi, onigiri, listinn er endalaus.

Að fara í lest þar var líka mjög gaman og skipulagið í lestarkerfinu var alveg magnað. Það var stór upplifun að fara í hraðlestarnar, við vorum orðnar ótrúlega góðu vanar að fara þvert yfir landið á augabragði.

Fólkið var ótrúlega almennilegt og kurteist og það var algjör lúxus að upplifa öryggið í Japan. Og svo verð ég auðvitað að nefna klósettin, þau eru ótrúleg, karókókíið, hylkjahótelin, sake-ið, skiltin, menningin, sagan, ég gæti haldið áfram endalaust! Ef einhver er að pæla í að fara til Japans, þá gæti ég ekki mælt meira með því.“

Hér eru vinkonurnar í hið fræga Fushimi Inari í Kyoto.
Hér eru vinkonurnar í hið fræga Fushimi Inari í Kyoto. Ljósmynd/Aðsend

Hvernig lítur sumarið út hjá þér?

„Ég er búin að vera að njóta þess að koma mér fyrir í Kaupmannahöfn og er spennt fyrir að eyða sumrinu hér, en alltaf með augun opin fyrir næsta ævintýri. Ég fór í brimbrettaferðina um páskana og svo kíkti ég til Möltu í maí svo það hefur verið nóg að gera. Í augnablikinu eru Indónesía og Víetnam efst á listanum, við sjáum hvað verður,“ segir Unnur Ósk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »