Heitustu Íslendingarnir um þessar mundir

Heitustu Íslendingarnir um þessar mundir.
Heitustu Íslendingarnir um þessar mundir. Samsett mynd

Við Íslendingar erum sjóðheit þjóð, þótt landið sjálft mætti alveg bæta aðeins við hitann hjá sér. Þetta glæsilega fólk hér að neðan lætur hins vegar gráa Ísland ekki stöðva sig í að sýna sitt besta dagsform og ef íslenska sólin stendur ekki undir sínu þá er einfaldlega skellt sér yfir hafið í leit að henni!

Karen Björg Lindsay

Karen Björg er stödd á Mykonos ásamt kærastanum sínum, knattspyrnumanninum Brynjólfi Willumssyni. Parið hefur verið duglegt að birta glæsilegar myndir úr ferðinni og greinilegt er að þau njóta sín vel í sólinni.

View this post on Instagram

A post shared by Karen Lindsay (@karenbjorrg)

Rúrik Gíslason

Þúsundþjalasmiðurinn Rúrik er ávallt til fyrirmyndar þegar kemur að því að birta glæsilegar myndir af sér berum að ofan. Honum þykir greinilega ekki leiðinlegt að sleikja sólina.

Sunneva Eir Einarsóttir

Áhrifavaldurinn og hlaðvarpsstjórnandinn Sunneva Eir Einarsdóttir hefur verið dugleg að ferðast upp á síðkastið og ekki síður dugleg að birta sjóðheitar myndir af sér í bikiníinu.

Róbert Samaniego 

Róbert, stofnandi Done-próteindrykkjarins, skellti sér til Ítalíu á dögunum og lét að sjálfsögðu eina mynd fylgja með sem sýnir dagsformið.

Hugrún Birta Egilsdóttir

Hugrún Birta, fyrrverandi fegurðardrottning Íslands, fann fallega náttúrulaug á Snæfellsnesi til að njóta sín í.

Vala Karítas Guðbjartsdóttir

Vala Karítas birti stórglæsilega mynd af sér þar sem hún naut sín í klettunum í Portúgal.

Hubba Bubba tvíeykið

Eyþór Aron Whöler og Kristall Máni Ingason, stofnendur hljómsveitarinnar Hubba Bubba, láta sér íslensku sólina duga.

Magnea Björg Jónsdóttir

Áhrifavaldurinn Magnea Björg nýtur sín á ströndunum í Hollandi þessa dagana.

Gummi Kíró

Gummi Kíró er staddur á Marbella á Spáni ásamt unnustu sinni, Línu Birgittu. Parið virðist njóta sín í botn ef marka má orð Gumma undir myndinni: „Að breyta um umhverfi er akkúrat það sem þú þarft.“

Birgitta Líf Björns­dótt­ir

Áhrifavaldurinn og markaðsstjóri World Class, Birgitta Líf, er algjör bomba í bleiku bikiníi við frönsku rívíeruna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »