„Ég skildi helminginn af hjartanu eftir úti“

Viktor Sveinsson, sérfræðingur hjá Úrval Útsýn, ásamt Katrínu Ösp Bjarnadóttur …
Viktor Sveinsson, sérfræðingur hjá Úrval Útsýn, ásamt Katrínu Ösp Bjarnadóttur í Banteay Srei-hofinu sem er hluti af rústum þess veldis sem við köllum í dag Angkor í Kambódíu. mbl.is/Aðsend

Það eru fáir landsmenn sem þekkja ferðalög um Asíu og Afríku líkt og Viktor Sveinsson sérfræðingur hjá Úrval Útsýn, gerir en hann á veg og vanda af sex vönduðum sérferðum sem kynntar verða á fimmtudaginn næsta, þann 12. júní í Hlíðarsmára 14, sal Lions á Íslandi.

„Ég var rúmlega tvítugur þegar ég fór í mína fyrstu heimsreisu um Asíu og Afríku,“ segir Viktor Sveinsson, sérfræðingur hjá Úrval Útsýn, sem er vafalaust einn helsti sérfræðingur þjóðarinnar þegar kemur að ævintýraferðum á fjarlægar slóðir. „Þetta var árið 1987 og hafði ferðalagið mjög mikil áhrif á mig. Þegar ég snéri heim skildi ég hálft hjarta mitt eftir á þessum slóðum,“ segir Viktor og útskýrir að á þessum tíma hafi ekki verið í neinn reynslubanka að leita á Íslandi í ferðalög sem þessi og alls ekki um neinar skipulagðar ferðir að ræða en hann hafi lesið allt sem hann komst yfir um staðina í bókum Lonely Planet.

„Þess vegna er ég svo spenntur fyrir kynningunni á fimmtudaginn þar sem við munum fjalla um sex stórar sérferðir sem farnar verða á vegum Úrval Útsýn á árinu. Þetta eru sannkallaðar ævintýraferðir sem eru sérsniðnar af mér og okkar teymi til að gera upplifun í Asíu og Afríku þannig að ferðaminningin mun lifa í hjörtu fólks um ókomna tíð. Líkt og hún gerði hjá mér á sínum tíma.“   

Sansibar og safarí í Tansaníu er spennandi sérferð sem Úrval …
Sansibar og safarí í Tansaníu er spennandi sérferð sem Úrval Útsýn býður upp á í vetur. mbl.is/Aðsend

Allar ferðirnar spennandi á sinn hátt

Hvað getur þú sagt okkur um þessar ferðir?

„Ferðirnar sex eru: Grand Tour d´Angkor sem er hjólaferð um Kambódíu, Sansibar og safarí í TansaníuÆvintýraferð til Sri LankaHringferð um BaliLandkönnun í Mexíkó sem er ævintýraferð um Yucatánskagann og ferðalag til Máritíus sem er fjarlæg eyja í Indlandshafi.

Það sem er einstakt við þessar ferðir er að við erum með mjög góða fararstjóra sem fylgja einungis tólf til fimmtán einstaklingum eftir í hverri ferð. Það gerir þjónustustig ferðanna mjög hátt.“

Fegurðin í Máritíus er þannig að erfitt er að setja …
Fegurðin í Máritíus er þannig að erfitt er að setja hana í orð en myndir frá staðnum gefa fólki hugmyndir um hvað má finna á eyjunni fögru. Unsplash/Dan Freeman

Kambódía er engu öðru lík

Viktor nefnir Grand Tour d´Angkor ferðina í Kambódíu sem dæmi um vel heppnaða ferð. „Ég hef skipulagt hjólaferð um Kambódíu frá árinu 2007 í hinum ýmsu myndum en í þessari ferð er hjólaferðin fullkomnuð. Við höfum náð að lágmarka ferðalög í rútum og flugvélum eins mikið og hægt er og bætt við afskekktari svæðum, meiri nálægð við sveitirnar og mannlífið.“

Kambódía er land í Suðaustur-Asíu með landamæri að Taílandi í vestri, Laos í norðri og Víetnam í austri að sögn Viktors og er saga landsins að hans mati alveg hreint mögnuð.

„Þar hafa einnig verið byggð mannvirki sem ennþá hefur ekki náðst að toppa. Má þar nefna Angkor Wat-hofið sem er stærsta trúarlega mannvirki í heiminum. Hofið er stærra en Péturskirkjan í Róm og það er stærra en stærstu moskur í heimi. En þess utan er fólkið í Kambódíu bara alveg einstakt. Það er svo einlægt, þar ríkir mikið traust og í sannleika sagt, að mínu mati, geta mannvirki eða náttúran aldrei heillað mann jafn mikið og fólkið gerir á staðnum.

Bara það að horfa í augu fólksins og að smakka matinn þeirra, tala við þau og mynda tengsl er einstakt á stöðum á borð við Kambódíu.“

Ferðin til Kambódíu er farin 6. nóvember næstkomandi og er forvitnilegt að vita hvernig sá tími er veðurlega séð. „Það er besti tíminn til að heimsækja landið. Í Kambódíu er milt hitabeltisveður og þar er alltaf heitt og rakt. Í nóvember er veðrið aðeins mildara en hitinn á þessum tíma ársins er í kringum 25 gráður.“

Aðspurður um í hversu góðu formi maður þarf að vera fyrir hreyfiferð á borð við hjólaferðina til Kambódíu segir Viktor að það sé í boði fyrir alla að vera á rafmagnshjóli. „Ég hef oft notað þá skilgreiningu að fólk þurfi að vera frískt og með hugann í lagi. Svo er alltaf fylgdarbifreið sem fylgir hópnum eftir sem fólk getur sest inn í til að taka sér pásu á miðjum degi.“

Grand Tour d´Angkor ferðin í Kambódíu er hin fullkomna hreyfiferð …
Grand Tour d´Angkor ferðin í Kambódíu er hin fullkomna hreyfiferð að mati Viktors. mbl.is/Aðsend

Fegurðin í Sansibar erfitt að koma í orð

Það sem er einstakt við skipulagðar ferðir á staði sem maður hefur ef til vill ekki komið til áður er að það er búið að varða leiðina að sögn Viktors. „Það er búið að tryggja að allt sé öruggt á ferðalaginu en við pössum okkur líka á að skilja eitthvað óvænt eftir. Því þó að við séum búin að varða leiðina og opna dyrnar þá viljum við ekki endilega halda í höndina á fólki alla leið. Hluti af ævintýrinu þegar maður er á annað borð kominn svo langt í burtu að heiman er að fá trygga leiðsögn en svo viltu vera skilinn eftir með eitthvað óvænt líka,“ segir Viktor og útskýrir að stundum séu ævintýrin fólgin í þessu litla óvænta á ferðalaginu.  

„Þegar þú ferð út í göngutúr um kvöldið þegar hópurinn er farinn að sofa og mætir einhverju óvæntu, eða vaknar snemma og gengur um bæinn, þorpið eða sveitina. Þannig pössum við að alltaf sé rými fyrir að upplifa eitthvað einn í öllum okkar skipulögðu ferðum.“

Sansibar og safarí í Tansaníu er annað magnað ævintýri að mati Viktors. „Við byrjum á að skoða og kynnast magnaðri sögu og heillandi menningu Stone Town sem er forn höfuðstaður Sansibar, svo er flogið til Tansaníu og farið í þriggja daga náttúru- og villidýrasafarí. Lokakafli ferðarinnar eru svo ljúfir dagar á stönd í Sansibar þar sem fegurðin er þannig að það er erfitt að koma henni í orð.“  

Fegurðin í náttúrunni er engu öðru lík. Þessi ljósmynd er …
Fegurðin í náttúrunni er engu öðru lík. Þessi ljósmynd er tekin í Sansibar. mbl.is/Aðsend

„Ferðalög gefa okkur frelsi“  

Þegar Viktor talar um ferðalög er eins og hugur hans fari á flug. „Já, það er satt. Ferðalög gefa mér svo margt. Þau gefa mér frí. Það að vera heima er magnað en þar er þröngur rammi. Heima er öryggi og tryggð en svo þarf maður að komast út úr því. Ferðalög víkka rammann þar sem við kynnumst nýrri menningu og nýju fólki. 

Svo er ég á því að ferðalög eigi ekki eingöngu að vera fislétt og leikandi. Á ferðalögum á maður að mæta einhverju óvæntu og við eigum að lenda í smá átökum sem enda vel. Mér finnst einnig mjög mikilvægt að komast úr kuldanum hér á Íslandi í annað umhverfi, ekki síst á veturnar. Það fylgir því svo mikið frelsi að vera léttklæddur og leyfa sólinni að baka sig,“ segir Viktor.   

Mögnuð mannvirki í miðri náttúruparadís er algeng sjón á ferðalögum …
Mögnuð mannvirki í miðri náttúruparadís er algeng sjón á ferðalögum í sérferðum Úrval Útsýnar. mbl.is/Aðsend

Ævintýrin gerast í Mexíkó

Landkönnun í Mexíkó, sem er ævintýraferð um Yucatánskagann, er ferð sem Adolf Jónsson fararstjóri hefur unnið með Úrval Útsýn til fjölda ára. „Adolf er snillingur í að leiða fólk í litlum hópum. Ferðin hefst og endar í Playa del Carmen, strandbænum við Karíbahaf, þaðan sem ekið er til Valladolid, Uxmal, Campeche og Merida áður en snúið er aftur til stranda. Akstur hvern dag er ekki lengri en tvær til þrjár klukkustundir svo ferðarykið er lítið en upplifanir og rannsóknir djúpar. Adolf hefur verið búsettur í Mexíkó síðustu árin svo það er mjög fróðlegt og skemmtilegt að fara í ferðalag með honum á þessar slóðir.“

Strandsælan í Mexíkó er mögnuð að mati Viktors.
Strandsælan í Mexíkó er mögnuð að mati Viktors. mbl.is/Aðsend

Mælir með hringferð um Balí

Þeir sem eru heillaðir af Balí geta valið að fara í stóru Balí-sérferðina á vegum Úrval Útsýn sem Viktor segir að sé engu öðru líkt. „Hringferð um Balí er landkönnun á eyju sem er agnarsmá en samt svo stór í huga margra Íslendinga. Að fara í jóga og sólina á Balí er mjög notalegt en ekki síst í þessari ferð sem er farin baksviðs.“

Hringerð um Balí er einstök að mati Viktors en hann …
Hringerð um Balí er einstök að mati Viktors en hann segir ferðina vera notalega en einnig mjög innihaldsríka. mbl.is/Aðsend

„Við byrjum á því að ferðast um eyjuna og kynnast mannlífinu og menningunni vel. Við förum á svæði þar sem útsýni er einstakt, skoðum fallega fossa og hof. Þess má geta að Balí er á stærð við Snæfellsnesið og Reykjanesskagann þannig að það er hægt að ferðast um hana á stuttum tíma. Dvalið er þrjár nætur í upphafi ferðarinnar í strandbænum Sanúr, síðan taka við sex nætur í fjallabænum Úbúd og að lokum er dvalið þrjár nætur við ströndina á vesturströndinni í Seminyak,“ segir Viktor og bætir við að ferðalangar fái allt sem Balí er þekkt fyrir í ferðinni; jóga, dekur, góðan mat, nudd og svo meira nudd og afslöppun.

Þeir sem hafa komið til Balí segja eyjuna mjög einstaka.
Þeir sem hafa komið til Balí segja eyjuna mjög einstaka. mbl.is/Aðsend

Það sem vekur athygli við þessa ferð er hótelin sem gist er á. „Þetta eru ekki hótel sem valin eru í hótel-leitarvélum heldur eru það við sérfræðingarnir sem veljum alltaf það besta á hverjum stað. Við veljum hótelin út frá gæðum og staðsetningu og svo höfum við ferðast mikið og prófað þetta allt sjálf.“

Það langar mörgum að upplifa eyjuna Balí undir tryggri handleiðslu …
Það langar mörgum að upplifa eyjuna Balí undir tryggri handleiðslu fararstjóra en einnig að fá tækifæri til að upplifa ævintýri sjálfur á eyjunni. mbl.is/Aðsend

„Það sem mér finnst skipta svo miklu máli í þessu samhengi er að ítreka að gervigreindin getur aldrei valið fyrir okkur það sem fólkið á staðnum mælir með, það vantar svo oft mannlega þáttinn í ferðalög í dag og við pössum okkur að hafa hann alltaf með.“

Hin fræga róla á Balí er eitthvað sem allir verða …
Hin fræga róla á Balí er eitthvað sem allir verða að prófa. En hvað er betra en að vera í góðu veðri úti í guðs grænni náttúrunni að leika sér? mbl.is/Aðsend

„Máritíus er paradís á jörðu“

Viktor segir að þegar kemur að náttúruperlum þar sem umhverfið er eins og í fallegu málverki þá sé Máritíus eyjan í Afríku algjörlega málið. „Þessi litla eyja sem var frönsk nýlenda hangir í miðju Indlandshafinu. Það eru því mjög sterk indversk áhrif á henni en það má finna sambland af allskonar menningu á eyjunni þar sem er magnaður matur, hátt þjónustustig og í sannleika sagt er þetta í mínum huga lítil paradís. Sérferðin til Máritíus er aðeins öðruvísi en hinar ferðirnar því dvalið er á sama hóteli allan tímann. Kristján Steinsson er fararstjóri ferðarinnar og er hann einstaklega góður fararstjóri með mikla reynslu. Flogið er út með Emirates-flugfélaginu svo ævintýrin í þessari ferð byrja í háloftunum.“

Viktor segir að þegar kemur að náttúruperlum þar sem umhverfið …
Viktor segir að þegar kemur að náttúruperlum þar sem umhverfið er eins og í fallegu málverki þá sé Máritíus eyjan í Afríku algjörlega málið. mbl.is/Unsplash

Sri Lanka þykir mikil náttúruparadís

Ferðin til Sri Lanka er svo annar gimsteinn að mati Viktors þar sem náttúran er óviðjafnanleg og fararstjórinn líka. „Það er einstakt að hafa Vilmund Hansen fararstjóra með í för þar sem náttúran er svo stórbrotin og staðurinn er rómaður fyrir mikla sögu trúarbragðalega séð. Þarna eru búddistar fyrst og fremst og áhugavert að kynna sér þeirra trúarbrögð. Þarna sérðu tígrisdýr, blettatígra, fíla og buffalóa. Sri Lanka er eyja í Indlandshafi og á þessari rúmlegu vikuferð verða allir helstu staðir eyjunnar heimsóttir, svo sem Negombo, Sigiriya, Nuvara Eyliya og Yala-þjóðarðurinn, Kandy og fleiri staðir. Eftir átta nætur á ferðalagi verður svo komið að strandarsælunni á Kalutara þar sem notið er fimm daga í sælunni og blíðunni.“

Að fylgjast með fílum og öðrum dýrum í sínu náttúrulega …
Að fylgjast með fílum og öðrum dýrum í sínu náttúrulega umhverfi er áhugamál margra á ferðalögum. mbl.is/Aðsend

Allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi

Hvaða ferð mælir þú sérstaklega með?

„Ég segi stundum að allar þessar ferðir séu eins og börnin okkar og erfitt að gera upp á milli þeirra, en þær eru ólíkar í eðli sínu og við sérfræðingarnir hjá Úrval Útsýn getum verið frekar fljót að átta okkur á því hvað hentar hverjum og einum best. Ég mæli bara með því að allir komi og hitti okkur á Ferðakynningunni á fimmtudaginn. Það ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi enda ótrúlega spennandi sérferðir í boði á þessu ári hjá ferðaskrifstofunni. Við sérsníðum einnig ferðir fyrir fjölskyldur og hópa og tökum vel á móti öllum þeim sem langar í ævintýri utan landsteinanna,“ segir Viktor Sveinsson, sérfræðingur hjá Úrvali Útsýn, að lokum.

Það er búið að tryggja að allt sé öruggt á …
Það er búið að tryggja að allt sé öruggt á ferðalaginu, en passað er upp á að skilja eitthvað óvænt eftir líka. mbl.is/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »