Andrea og Elísabet ætla aftur til Portó

Vinkonurnar Andrea og Elísabet heilluðust af Portó.
Vinkonurnar Andrea og Elísabet heilluðust af Portó. Samsett mynd

Andrea Magnúsdóttir fatahönnuður og Elísabet Gunnarsdóttir áhrifavaldur vörðu nokkrum dögum í portúgölsku borginni Portó. Þetta var sannkölluð vinkonuferð þar sem þær þræddu borgina, borðuðu góðan mat og slökuðu á í sólinni. Þær urðu heillaðar af borginni og eru strax farnar að skipuleggja næstu ferð. 

Sjaldan fallið jafn hratt fyrir borg enda með peppara lífs míns í ferðinni. Elísabet sér fegurð í öllu og það er ekki annað hægt en að hrífast með. Porto er falleg, full af list, menningu, góðum mat og góðu kaffi. Strax farin að plana næstu ferð,“ skrifar Andrea á Instagram. 

Listrænt samfélag

Portó er þekkt fyrir skapandi andrúmsloft og listrænt samfélag. Þótt margar af fremstu listastofnunum landsins sé að finna í Lissabon er t.d. að finna eitt besta samtímalistasafn Evrópu í Portó, Serralves Foundation. Matarmenningin er einnig áhugaverð og þar trónir kjöt á toppnum. Sterk vín eru einnig stór hluti af matargerðararfleifð borgarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »