Eitt glas af jarðarberjum á 3.500 krónur

Jarðarber í glasi með heitu, bráðnu súkkulaði - einföld en …
Jarðarber í glasi með heitu, bráðnu súkkulaði - einföld en gómsæt samsetning. Samsett mynd

Uppruni trendsins

Árið 2023 sá grænmetissalinn Turnips glufu á markaðnum og byrjaði að selja fersk jarðarber í glasi, þakin rjúkandi heitu súkkulaði. Þessi einfalda en gómsæta hugmynd varð fljótt vinsæl og gestir fóru að streyma hvaðanæva að til að smakka lostætið.

Eitt glas á 3.500 krónur

Trendið breiddist hratt út til fleiri borga og víða var farið að bjóða upp á sams konar lostæti. Bandaríkjamenn létu ekki sitt eftir liggja og veturinn 2024 spratt upp vinsæll sölubás í New York. Þar mynduðust langar raðir af forvitnum sælkerum og sumir biðu jafnvel í allt að tvo klukkutíma í kuldanum eftir glasi af hinum frægu jarðarberjum.

Til að skera sig úr fjöldanum bauð básinn upp á sérstaka lúxusútgáfu. Í stað hefðbundins súkkulaðis voru jarðarberin hjúpuð í bráðið súkkulaði með silkimjúku pistasíukremi og söxuðum pistasíuhnetum. Þið kannist líklega við þessa samsetningu en um er að ræða vinsæla Dubai-súkkulaðið sem hefur verið um allar trissur síðustu mánuði.

Verðið fyrir þennan munaðarfulla losæti er um 27 bandaríkjadollarar, sem jafngildir tæpum 3.500 íslenskum krónum.

Er þetta þess virði?

Samfélagsmiðlar, sérstaklega TikTok, hafa reynst öflugur drifkraftur í útbreiðslu trendsins. Litrík, stutt myndbönd af safaríkum jarðarberjum í glæru glasi, þar sem silkimjúku bráðnu súkkulaði er hellt yfir, hafa vakið mikla athygli og ýtt undir ómótstæðilega löngun hjá áhorfendum. Eitt slíkt TikTok-myndband hefur til dæmis fengið tugi milljóna áhorfa og ótal notendur hafa í kjölfarið deilt sinni eigin upplifun af sælgætinu.

Verðlagningin á þessu æði hefur vakið upp spurningar um hvort upplifunin sé virkilega peninganna virði. Margir netverjar benda á að í rauninni sé þetta mjög hefðbundin samsetning - jarðarber og súkkulaði hafa lengi farið vel saman en með fallegum umbúðum og snjöllum markaðsherferðum hefur verðmiðinn margfaldast. Íslenskur kaffibollakúltúr, þar sem einfaldur kaffibolli er seldur á yfirverði, á sér til dæmis samsvörun í þessu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »