Ferðaskrifstofan Scandinavia Travel North ehf. á Húsavík hefur boðið ferðamönnum upp á heillandi ferðir og falda fjársjóði í kringum Húsavík.
Nú hefur ferðaskrifstofuleyfi Scandinavia Travel North ehf. verið fellt úr gildi af hálfu Ferðamálastofu.
„Starfsemi ferðaskrifstofunnar var tryggingaskyld vegna sölu pakkaferðar og samtengdrar ferðatilhögunar samkvæmt VII. kafla laga um pakkaferðir nr. 95/2018.
Ferðatryggingasjóður endurgreiðir ferðamanni þær greiðslur sem hann hefur innt af hendi og ekki hafa verið endurgreiddar vegna pakkaferðar eða samtengdrar ferðatilhögunar sem ekki er framkvæmd í samræmi við samning þar sem að leyfi félagsins var fellt niður af hálfu Ferðamálastofu.
Með vísan til 27. gr. laga um pakkaferðir er hér með skorað á þá viðskiptavini fyrirtækisins, sem telja sig eiga kröfu á hendur því, sbr. ofangreint, að leggja fram skriflegar kröfulýsingar fyrir 26. júlí n.k,“ segir í Lögbirtingablaðinu.
Þar er tekið fram að fólk þurfi að vera með fullnægjandi gögn til sönnunar um kröfuna, svo sem lýsingu á ferð, kvittanir fyrir greiðslu eða millifærslu.