48 tímar í París: „Ást við fyrstu sýn“

48 tímar í París: Hvað er hægt að gera og …
48 tímar í París: Hvað er hægt að gera og sjá. Samsett mynd

París er ekki kölluð borg ástarinnar að ástæðulausu, fáar borgir í heiminum bjóða upp á jafn heillandi blöndu af sögufrægri menningu, stórbrotinni byggingarlist og líflegu borgarlífi. 

Blaðamaður mbl.is skellti sér í sína fyrstu ferð til Parísar nú í vor og féll kylliflöt fyrir borginni. Eftir að hafa eytt tveimur dögum í París stóðu nokkrar upplifanir og staðir sérstaklega upp úr. Hér eru atriði sem ættu að vera á dagskrá hjá hverjum þeim sem heimsækir borgina í fyrsta sinn og finnst gaman að hafa gaman.

Að gera

Rölta meðfram Signu

Að ganga meðfram Signufljótinu er klassísk leið til að kynnast París. Það er eitthvað töfrandi við að rölta yfir hinar sögulegu brýr, skoða bouquiniste - gömlu grænu bókabásana meðfram ánni og njóta götulífsins. Að sitja á bekk við Signu með nýbakað croissant og horfa á bátana sigla hjá er einföld en ógleymanleg upplifun sem fangar kjarna Parísar.

Bouquiniste bókabás.
Bouquiniste bókabás. Ljósmynd/Hafdís Sól

Aquarium Club Paris

Fyrir þá sem finnst ekki leiðinlegt að kíkja út á næturlífið við og við tók ég það á mig eitt kvöldið að skoða úrval næturklúbba í París. Ef þig klæjar í tærnar og þráir að kíkja á dansgólfið er ómissandi að prófa Aquarium Club, einn sá sérkennilegasti í borginni. Klúbburinn er hýstur inni í risavöxnu fiskabúri, þar sem alls konar fiskar synda bak við DJ-púlt og dansgólfið.

Andrúmsloftið er óaðfinnanlegt, á einu augnabliki er maður að dilla sér við tónlistina og á því næsta er maður að fylgjast með skjaldböku svífa í bakgrunn. Ég er enn ekki viss hvort kvöldið stóð upp úr vegna tónlistarinnar eða vegna þess að ég var oftar en ekki gapandi yfir þessu sjávarlífi. Myndaalbúmið mitt endaði að minnsta kosti næstum eingöngu með myndum af fiskabúrinu.

Týnast í Montmartre

Í norðanverðri París trónir hæðin Montmartre, einna þekktust fyrir hvítu Sacré-Cœur-kirkjuna sem gnæfir yfir borgina. Það er ómissandi að rölta um krókóttar, steinilagðar götur Montmartre-hverfisins, þar sem listmálarar teikna portrett á torginu Place du Tertre og lífið gengur sinn hæga gang. Hverfið hefur ákveðinn gamaldags sjarma; hér má auðveldlega týna sér í andrúmsloftinu, setjast á litla kaffihúsið á horni götunnar og njóta útsýnisins yfir borgina.

Margir segja Montmartre vera fallegasta hverfið í París, enda guðdómlegar …
Margir segja Montmartre vera fallegasta hverfið í París, enda guðdómlegar byggingar og krúttlegar götur sem prýða hverfið. Ljósmynd/Unsplash/Bastien Nvs

Að sjá

Eiffelturninn

Enginn ferðalangur lætur Eiffelturninn fram hjá sér fara, járnturninn fræga sem reistur var fyrir heimssýninguna 1889. Ég verð að viðurkenna að ég var alltaf hálfdolfallinn þegar ég horfði upp eftir þessum gríðarstóra turni sem maður hefur séð ótal sinnum á ljósmyndum og í kvikmyndum.

Á kvöldin breytist allt, turninn er útataður í gylltum ljósum og glitrar fyrstu fimm mínúturnar á hverjum klukkutíma eftir að sólin sest. Þið viljið ekki missa af þeirri sýningu eins og mér tókst einhvern veginn að gera! Það gefur mér þó fullkomna afsökun til að heimsækja París aftur við fyrsta tækifæri.

Eitt sem ég mæli með að gera: Pakkið teppi, ostum, jarðarberjum, súkkulaði og kampavíni, leggið ykkur út á Champs-de-Mars og njótið lautarferðar með beinu útsýni að turninum. Getur það orðið rómantískara?

Eiffelturninn frægi.
Eiffelturninn frægi. Ljósmynd/Hafdís Sól

Notre Dame-kirkjan

Hin goðsagnakennda Notre Dame-dómkirkja er annað kennileiti sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Þessi 862 ára gamla stórkirkja prýðir Ile de la Cité-eyju og var reist á árunum 1163 til 1345. Eftir brunann 2019 hefur verið unnið að enduruppbyggingu kirkjunnar og hún opnaði aftur fyrir almenning árið 2024. 

Fyrir þá sem ólust upp við Disney-myndina „Hringjarinn í Notre Dame“ (The Hunchback of Notre Dame) vakna hér ævintýramyndir úr bernsku; maður getur næstum ímyndað sér Quasimodo sjálfan klingja kirkjuklukkum í turninum á meðan Esmeralda dansar á torginu fyrir framan. Ef þið eruð á leiðinni til Parísar en hafið ekki horft á þessa mynd er þetta skylduáhorf í flugvélinni.

Matur og drykkir

NOTO

Til að upplifa næturlíf og góðan mat í senn er veitingastaðurinn NOTO frábært val. NOTO er líflegur staður með ítölsku ívafi sem hefur skapað sér nafn sem einn af skemmtilegustu „partí“-veitingastöðum borgarinnar. Á kvöldin lifnar hann við skemmtileg tónlistaratriði. Stemningin er öflug, matseðillinn býður upp á ljúffenga rétti og kokteilar hússins toppa kvöldið. Hvort sem þú kemur hingað í fordrykk, kvöldverð eða kokteila seint um kvöld, þá er andrúmsloftið á NOTO óviðjafnanlegt og skemmtilegt langt fram á nótt.

Girafe

Ef rómantísk kvöldstund með útsýni er það sem þú leitar að, þá er Girafe staðurinn. Þessi glæsilegi veitingastaður er staðsettur í Palais de Chaillot og státar af stórfenglegri útiverönd á efstu hæð með ótrúlegu útsýni yfir Eiffelturninn. Girafe er vinsæll staður bæði meðal heimamanna og ferðamanna, svo vænlegt er að panta borð með fyrirvara ef mögulegt er, en upplifunin af bæði mat og útsýni er algjörlega þess virði.

Carette

Í nálægð við Trocadéro er sögufræga kaffihúsið Carette, sem margir telja ómissandi viðkomustað í París. Carette var stofnað árið 1927 og hefur í yfir 80 ár trónað á Trocadéro-torginu sem uppáhaldsstaður heimamanna. Þú finnur þar dásamlegar makkarónur, brakandi ferskt bakkelsi og silkimjúkt heitt súkkulaði. Hins vegar þarf að gera ráð fyrir biðröð, vinsældir staðarins þýða að oft myndast röð langt út fyrir dyr. Sé biðin of löng getur maður fengið svipaða upplifun á kaffihúsinu við hliðina á - sem er einmitt það sem ég gerði.

Er eitthvað betra en að setjast niður eftir langan dag …
Er eitthvað betra en að setjast niður eftir langan dag í nýrri stórborg og panta sér einn drykk? Ljósmynd/Hafdís Sól
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »