Það eru eflaust ekki margir Íslendingar sem hafa gert sér ferð til Basel í Sviss nema þeir sem skelltu sér á Eurovision nú á dögunum en sú litríka borg kemur skemmtilega á óvart. Basel er þriðja stærsta borg Sviss, staðsett við Rínarfljót rétt við landamæri Frakklands og Þýskalands, og hefur lengi verið menningar- og listamiðstöð landsins.
Blaðamaður mbl.is skellti sér í stutta vorferð til Basel. Borgin reyndist algjör menningarperla þar sem hægt er að hjóla á milli heimsklassa listasafna, slaka á við árbakkann og sökkva sér í sögu borgarinnar í fallegum miðbænum.
Hjóla meðfram Rín
Það er frábær hugmynd að skoða Basel á reiðhjóli. Göngustígar og hjólabrautir liggja meðfram Rínarfljótinu og gefa gestum tækifæri til að njóta útsýnisins yfir vatnið á meðan hjólað er milli hverfa. Landslagið er að mestu flatt við ána svo áreynslan er lítil. Hægt er að leigja hjól víða um borgina og hjóla yfir sögulegu brýrnar, inn í þröngar götur gamla bæjarins eða jafnvel út að Dreiländereck, horninu þar sem landamæri þriggja landa mætast.
Synda í ánni
Á sólríkum dögum má sjá heimamenn Basel kæla sig niður með því að synda í sjálfu Rínarfljótinu. Það hefur lengi verið hefð í borginni að stökkva út í tærar öldur Rínar og láta strauminn bera sig meðfram borginni. Fyrir þá sem treysta sér ekki í sundsprett er líka hægt að busla við árbakkann eða einfaldlega fara í fótabað í fljótinu.
Njóta útimarkaða
Basel státar af líflegum útimörkuðum þar sem hægt er að upplifa ekta svissneskt mannlíf. Snemma á morgnana leggja bændur og kaupmenn undir sig Markaðstorgið (Marktplatz) í hjarta borgarinnar. Þar má rölta milli bása undir berum himni og velja úr fersku grænmeti, ávöxtum, ostum og blómum sem fylla torgið af litum og ilmi. Ef ferðin á sér stað á laugardegi er ómissandi að kíkja við á flóamarkaðinn á Petersplatz, þar sem hægt er að fá allt milli himins og jarðar - forn húsgögn, vínylplötur, antikmuni og jafnvel vintage-föt. Við hvert horn má finna eitthvað forvitnilegt.
Dómkirkjan og útsýnið yfir Rín
Hin tignarlega Basel-dómkirkja (Basler Münster) setur svip sinn á borgina. Kirkjan, sem var upphaflega reist á 13. öld, er ekki bara glæsileg að utan heldur geymir líka merkilega sögu og glerlist inni. Svo er það Pfalz, útsýnispallur aftan við kirkjuna, þar sem ferðalangar og heimamenn safnast gjarnan saman. Þaðan sérðu blágræna fljótið sem rennur í gegnum borgina. Á góðviðrisdegi má jafnvel greina snævaþakta tinda svissnesku Alpanna í fjarska.
Gönguferð um gamla bæinn
Gamli bærinn í Basel er sannkölluð tímavél. Best er að byrja gönguna við Markaðstorgið, þar sem hið skrautlega Ráðhús (Basler Rathaus) gleður augað. Þaðan geturðu rölt inn í hinar steinlögðu hliðargötur miðbæjarins, t.d. upp breiðstrætið Freie Strasse þar sem verslanir og kaffihús leynast í sögufrægum byggingum, eða inn í þrengri smugur eins og Spalenberg. Í þessum hverfum má sjá fjölda húsa frá miðöldum, máluð í mildum pastel-litum með viðargluggum og blómum í gluggakistunum. Á leiðinni kíkirðu kannski inn í litlar hönnunar- og handverksverslanir sem finna má á hverju strái, eða einfaldlega dregur andann djúpt og nýtur þess að finna ilminn af nýbökuðu brauði og kaffinu sem berst út á göturnar.
Listasafnið Kunstmuseum
Basel er þekkt sem borg listasafna, enda er haldin þar ein stærsta listahátíð í heimi, Art Basel. Ef tíminn leyfir aðeins eitt safn er Kunstmuseum Basel, listasafn Basel-borgar, skylduáfangastaður fyrir listaspírur. Þetta virðulega safn er elsta listasafn Sviss og hýsir stórkostlegt safn meistaraverka frá ólíkum tímum. Á veggjum þess hanga verk eftir listamenn á borð við Holbein, Picasso, Monet og Van Gogh, auk víðfræga samtímalistamanna.
Zum Kuss
Zum Kuss er áfangastaður sem gleður bæði bragðlauka og augu. Húsið stendur við græna trjáhvísl í De Wette-/Elisabethen-garðinum, í Art-Nouveau húsi sem áður hýsti líkhús borgarinnar - sem hljómar reyndar ekkert heillandi en í dag hefur byggingin umbreyst í hlýlegt kaffihús. Hér getur þú byrjað daginn á ilmandi espresso macchiato, eins og Tommy Ca$h söng um, og nýbökuðu Läckerli, gripið léttan hádegismat eða kíkt í kokteil. Það er eitthvað svo yndislegt við það að sjá allt fólkið njóta lífsins í græna garðinum, með kaffibolla eða jafnvel einn Aperol Spritz í hendi.