Umræður um veiðigjöld ekki lengur málefnalegar

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra ræddi við mbl.is að loknum ríkisstjórnarfundi.
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra ræddi við mbl.is að loknum ríkisstjórnarfundi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir að umræður um veiðigjaldafrumvarpið sitt á Alþingi séu hættar að vera málefnalegar. Hún gerir ráð fyrir að frumvörp um veiðigjöld og strandveiðar verði samþykkt áður en þingmenn fara í sumarfrí.

Þetta segir Hanna Katrín, sem ræddi við blaðamann að loknum ríkisstjórnarfundi. 

Umræður um veiðigjöld hafa staðið yfir í dágóðan tíma en málið er nú í annarri umræðu á Alþingi.

„Mér finnst ekkert óeðlilegt að þessi mál séu rædd. Ég hef nú verið að detta inn í umræðuna öðru hverju til að fylgjast með og það vita allir sem vilja vita, að málefnalegu innleggin í umræðuna – sá tími er liðinn. Þetta er auðvitað komið út í það að ræða hitt og þetta,“ segir Hanna Katrín.

Mögulega þurfi að endurskoða fyrirkomulagið

Hún segir að kannski sé komin ástæða til að skoða heildrænt hvort breyta þurfi fyrirkomulagi á Alþingi um að leyfa umræður um frumvörp svona lengi, þó svo hún vilji ekki taka veiðigjaldafrumvarpið út fyrir sviga.

Núna mega þingmenn flytja eins margar ræður og þeir vilja í annarri umræðu.

„En það er kannski komin ástæða til að skoða hlutina heildrænt, hvort að þetta sé besta leiðin, þetta fyrirkomulag sem við höfum haft. Hvort sem það er fyrir hönd stjórnarliða hverju sinni eða stjórnarandstöðu,“ segir hún.

Hanna Katrín kveðst þó ekki hafa beitt sér fyrir slíku áður og kveðst ekki ætla að gera það.

Heldur að strandveiðifrumvarp verði samþykkt

Hún er einnig með frumvarp um strandveiðar sem myndi, ef það verður að lögum, víkja frá skyldum Fiskistofu um að stöðva strandveiðar svo að hægt verði að tryggja 48 daga strandveiðitímabil í sumar.

Fiskistofa á samkvæmt lögum að stöðva strandveiðar þegar sýnt er að leyfilegum heildarafla hafi verið náð samkvæmt reglugerð sem ráðherra setur um strandveiðar ár hvert. Frumvarpið var afgreitt úr nefnd í gær.

Heldurðu að frumvarpið verði samþykkt áður en þið farið í sumarfrí?

„Ég hef trú á því, já.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.6.25 461,14 kr/kg
Þorskur, slægður 27.6.25 613,21 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.6.25 396,10 kr/kg
Ýsa, slægð 27.6.25 337,01 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.6.25 10,00 kr/kg
Ufsi, slægður 27.6.25 255,72 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 16.6.25 30,00 kr/kg
Gullkarfi 27.6.25 180,98 kr/kg
Litli karfi 25.6.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.6.25 Fjølnir GK 757 Lína
Þorskur 11.865 kg
Ýsa 275 kg
Keila 184 kg
Karfi 169 kg
Steinbítur 21 kg
Ufsi 5 kg
Samtals 12.519 kg
28.6.25 Hrói SH 40 Grásleppunet
Grásleppa 611 kg
Samtals 611 kg
28.6.25 Óðinshani ÍS 445 Sjóstöng
Þorskur 153 kg
Samtals 153 kg
28.6.25 Álft ÍS 413 Sjóstöng
Þorskur 328 kg
Samtals 328 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.6.25 461,14 kr/kg
Þorskur, slægður 27.6.25 613,21 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.6.25 396,10 kr/kg
Ýsa, slægð 27.6.25 337,01 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.6.25 10,00 kr/kg
Ufsi, slægður 27.6.25 255,72 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 16.6.25 30,00 kr/kg
Gullkarfi 27.6.25 180,98 kr/kg
Litli karfi 25.6.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.6.25 Fjølnir GK 757 Lína
Þorskur 11.865 kg
Ýsa 275 kg
Keila 184 kg
Karfi 169 kg
Steinbítur 21 kg
Ufsi 5 kg
Samtals 12.519 kg
28.6.25 Hrói SH 40 Grásleppunet
Grásleppa 611 kg
Samtals 611 kg
28.6.25 Óðinshani ÍS 445 Sjóstöng
Þorskur 153 kg
Samtals 153 kg
28.6.25 Álft ÍS 413 Sjóstöng
Þorskur 328 kg
Samtals 328 kg

Skoða allar landanir »

OSZAR »