Uppsjávarskip Gjögurs, Hákon EA 148, verður brátt selt úr landi. Ingi Jóhann Guðmundsson framkvæmdastjóri Gjögurs staðfesti söluna í samtali við 200 mílur. Jafnframt sagði hann að skipið yrði gert út undir erlendu flaggi og til stæði að það verði afhent kaupendum í september. Hákon kom til Akureyrar seint í gærkvöldi og mun fara í stóra klössun hjá slippnum. Meðal annars á að stækka frystikerfið og fjölga kojum svo rúm sé fyrir 40 manns.
Hákon EA 148 hefur frá upphafi verið í eigu Gjögurs en hann var með fyrstu skipunum sem rötuðu fullhönnuð af teikniborði skipahönnunarfyrirtækisins Nautic. Skipið er 76 metra langt og 14 metra breitt uppsjávarfrystiskip útbúið til nóta- og togveiða og í áhöfn voru 12 til 24 eftir veiðum og vinnslu. Hákon var smíðaður í Síle árið 2001 og er því ekkert unglamb lengur en hann hefur þjónað hlutverki sínu vel. Skipið var gert út frá Grenivík og áhöfnin að mestu verið af Eyjafjarðarsvæðinu.
„Þetta er mjög gott skip og það er nú alltaf eftirsjá að góðum skipum en það koma ný í staðinn,“ segir Ingi Jóhann. „En eins og staðan er í sjávarútvegi á Íslandi núna þá er ekki gott að eiga allt of mörg skip."
Arftaki Hákons var smíðaður af dönsku skipasmíðastöðinni Karstensens Skibsværft A/S og var afhentur Gjögri í október í fyrra. Skipið er 75 metra langt og 17 metra breitt og í áhöfn eru 9 til 11 skipverjar.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 27.6.25 | 461,14 kr/kg |
Þorskur, slægður | 27.6.25 | 613,21 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 27.6.25 | 396,10 kr/kg |
Ýsa, slægð | 27.6.25 | 337,01 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 27.6.25 | 10,00 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.6.25 | 255,72 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 26.5.25 | 99,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 16.6.25 | 30,00 kr/kg |
Gullkarfi | 27.6.25 | 180,98 kr/kg |
Litli karfi | 25.6.25 | 10,00 kr/kg |
28.6.25 Bergey VE 44 Botnvarpa | |
---|---|
Ýsa | 23.401 kg |
Karfi | 700 kg |
Samtals | 24.101 kg |
28.6.25 Fjølnir GK 757 Lína | |
---|---|
Þorskur | 11.865 kg |
Ýsa | 275 kg |
Keila | 184 kg |
Karfi | 169 kg |
Steinbítur | 21 kg |
Ufsi | 5 kg |
Samtals | 12.519 kg |
28.6.25 Hrói SH 40 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 611 kg |
Samtals | 611 kg |
28.6.25 Óðinshani ÍS 445 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 153 kg |
Samtals | 153 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 27.6.25 | 461,14 kr/kg |
Þorskur, slægður | 27.6.25 | 613,21 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 27.6.25 | 396,10 kr/kg |
Ýsa, slægð | 27.6.25 | 337,01 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 27.6.25 | 10,00 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.6.25 | 255,72 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 26.5.25 | 99,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 16.6.25 | 30,00 kr/kg |
Gullkarfi | 27.6.25 | 180,98 kr/kg |
Litli karfi | 25.6.25 | 10,00 kr/kg |
28.6.25 Bergey VE 44 Botnvarpa | |
---|---|
Ýsa | 23.401 kg |
Karfi | 700 kg |
Samtals | 24.101 kg |
28.6.25 Fjølnir GK 757 Lína | |
---|---|
Þorskur | 11.865 kg |
Ýsa | 275 kg |
Keila | 184 kg |
Karfi | 169 kg |
Steinbítur | 21 kg |
Ufsi | 5 kg |
Samtals | 12.519 kg |
28.6.25 Hrói SH 40 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 611 kg |
Samtals | 611 kg |
28.6.25 Óðinshani ÍS 445 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 153 kg |
Samtals | 153 kg |