Breska líftæknifyrirtækið BioMara sem sérhæfir sig í að framleiða vörur úr þara hefur fengið jákvæðar niðurstöður úr þróun sinni á nýrri, trefjaríkri afurð sem unnin er úr sjálfbærri þörungaræktun. Varan, sem nefnist Seafibrex, var prófuð í bökuðum vörum á borð við brauð og bollakökur og einnig sem viðbót við plöntukjötlíki. Árangurinn er sagður góður en þörungaefnið þótti ekki skerða eða hafa neikvæð áhrif á bragð, áferð eða hagkvæmni í framleiðslu.
Seafibrex er unnið úr marinkjarna (lat. alaria esculenta), brúnþörung sem vex í brimi neðst í fjörum og er algengur á um 5 metra dýpi. Marinkjarni sést víða við strendur í Norður-Atlantshafi, þar á meðal við Ísland en þörungurinn hefur víða verið notaður við matargerð. Þekkt eru dæmi þess að hér á landi hafi hann verið notaður í brauðbakstur. Þá hefur hann einnig verið nýttur í ýmsar aðrar vörur, allt frá snyrtivörum til áburðar. Þörungaræktun er víða í vexti, einnig hér á landi en hún er hefur jákvæð áhrif á umhverfið því henni fylgir lítið kolefnisspor og þörungar binda koltvísýring.
BioMara beitir sérstökum aðferðum sem fyrirtækið hefur einkaleyfi á til að draga úr þörungunum blöndu af trefjum, andoxunarefnum, steinefnum og flóknum kolvetnum. Fyrirtækið segir blönduna lýðheilsueflandi því hún bæti næringarinnihald matvara. Auk trefja og steinefna vinnur BioMara úr þörungunum fleiri efni sem eru meðal annars notuð í húðvörur og lækningatæki. Þaulnýting þörunganna og notkun í fjölþættri framleiðslu segir fyrirtækið að geri framleiðsluna bæði umhverfisvæna og hagkvæma.
Jay Dignan, forstjóri BioMara segir meðal annars að marinkjarni hafi orðið fyrir valinu vegna þess að hann vaxi hratt og henti vel til sjálfbærrar þörungaræktunar sem sé ört vaxandi iðnaður í Bretlandi. Þá virki hann vel sem viðbót við fjölbreytt matvæli án þess að kalla fram fráhrindandi bragð en þrátt fyrir síaukinn áhuga á hollum matarkosti hefur reynst erfitt að markaðssetja mat sem unninn er úr þörungum. BioMara leggja því í staðinn áherslu á aðferð sem þau kalla leynihollustu (e. health by stealth) og gengur út á að bæta næringu í venjulegum mat án þess að breyta útliti eða upplifun neytandans. Brauðið sem fyrirtækið þróaði hafi til að mynda sama útlit og bragð og venjulegt heilhveitibrauð en innihaldi engu að síður fjölbreyttari og hollari næringarefni.
Næsta skref hjá fyrirtækinu er að auka framleiðslu og vinna með fleiri matvælaframleiðendum að sjálfbærri og næringarríkri vöruþróun en fram undan eru frekari prófanir á Seafibrex í snakki, súpum, sósum og jafnvel drykkjum.