Þorsteinn Már lætur af störfum

Þorsteinn Már Baldvinsson og Baldvin Þorsteinsson.
Þorsteinn Már Baldvinsson og Baldvin Þorsteinsson. Ljósmynd/Samherji

Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja hefur tilkynnt afsögn sína sem forstjóri félagsins en hann lætur af störfum í júní. Þetta kemur fram í opnu bréfi sem Þorsteinn sendi á starfsfólk Samherja.

„Ég hef tekið ákvörðun um að láta af störfum sem forstjóri Samherja hf. eftir að hafa gegnt því starfi í 42 ár eða frá stofnun félagsins árið 1983. Starfslok verða í næsta mánuði,“ segir í bréfinu.

Einnig kemur fram að stjórn félagsins hafi gengið frá ráðningu Baldvins Þorsteinssonar í stöðu forstjóra. Baldvin er jafnframt einn stærsti hluthafi Samherja og núverandi stjórnarformaður.

„Ég ákvað fyrir löngu að hætta á mínum forsendum áður en ég yrði gamall og leiðinlegur. Allt hefur sinn tíma og mér finnst þessi tímasetning rétt,“ segir Þorsteinn Már, sem lýsir djúpu þakklæti til starfsfólks Samherja og stofnenda félagsins.

Samherji hefur á þessum tíma vaxið úr útgerð með einum togara yfir í eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins, með fjölbreytta starfsemi og yfir 800 starfsmenn. Þorsteinn Már mun áfram gegna stjórnunarhlutverkum, meðal annars hjá Samherja fiskeldi og Síldarvinnslunni hf.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.5.25 399,85 kr/kg
Þorskur, slægður 23.5.25 620,81 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.5.25 395,89 kr/kg
Ýsa, slægð 23.5.25 403,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.5.25 148,18 kr/kg
Ufsi, slægður 23.5.25 237,77 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 23.4.25 20,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 23.5.25 172,33 kr/kg
Litli karfi 22.5.25 11,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.5.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.856 kg
Steinbítur 993 kg
Ýsa 977 kg
Langa 302 kg
Ufsi 211 kg
Keila 58 kg
Skarkoli 52 kg
Hlýri 44 kg
Samtals 12.493 kg
23.5.25 Már ÍS 440 Sjóstöng
Þorskur 94 kg
Samtals 94 kg
23.5.25 Lundi ÍS 406 Sjóstöng
Steinbítur 482 kg
Þorskur 93 kg
Ýsa 14 kg
Samtals 589 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.5.25 399,85 kr/kg
Þorskur, slægður 23.5.25 620,81 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.5.25 395,89 kr/kg
Ýsa, slægð 23.5.25 403,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.5.25 148,18 kr/kg
Ufsi, slægður 23.5.25 237,77 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 23.4.25 20,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 23.5.25 172,33 kr/kg
Litli karfi 22.5.25 11,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.5.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.856 kg
Steinbítur 993 kg
Ýsa 977 kg
Langa 302 kg
Ufsi 211 kg
Keila 58 kg
Skarkoli 52 kg
Hlýri 44 kg
Samtals 12.493 kg
23.5.25 Már ÍS 440 Sjóstöng
Þorskur 94 kg
Samtals 94 kg
23.5.25 Lundi ÍS 406 Sjóstöng
Steinbítur 482 kg
Þorskur 93 kg
Ýsa 14 kg
Samtals 589 kg

Skoða allar landanir »

OSZAR »