„Það var ágætis kropp. Við vorum að veiðum austnorðaustur af Færeyjum og aflinn fékkst í átta holum,“ segir Hálfdan Hálfdanarson skipstjóri á Berki NK um síðasta kolmunnatúr áhafnarinnar í bili. Börkur kom til hafnar í Neskaupstað í nótt með 3.200 tonn af kolmunna úr færeyskri lögsögu.
Í færslu á vef Sídlarvinnslunnar segir Hálfdan að það fengust um 250 til 600 tonn í holi og að dregið var í um tíu til sautján tíma.
„Þetta er fínasti fiskur sem þarna er á ferðinni. Það voru ekki mörg íslensk skip á miðunum. Þarna voru Síldarvinnsluskipin og Hákon. Færeysk, norsk og rússnesk skip voru nokkur og svo var grænlenska skipið Polar Amaroq þarna. Það er rúmur mánuður síðan þessi vertíð í færeysku lögsögunni hófst og hún hefur gengið býsna vel. Það hefur bæði verið gott veður og góð veiði. Það verður búið að landa úr skipinu í kvöld og þá er næst á dagskrá að þrífa og gera klárt fyrir næsta úthald sem er makrílúthaldið. Kolmunnaveiðum hjá okkur er semsagt lokið í bili. Ég held að menn geri ráð fyrir að haldið verði til makrílveiða einhvern tímann eftir miðjan júní,“ segir Hálfdan.
Fram kemur að Barði og Beitir eru enn á kolmunnaveiðum í færeysku lögsögunni.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 15.5.25 | 522,85 kr/kg |
Þorskur, slægður | 15.5.25 | 557,60 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 15.5.25 | 449,25 kr/kg |
Ýsa, slægð | 15.5.25 | 406,52 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 15.5.25 | 11,00 kr/kg |
Ufsi, slægður | 15.5.25 | 280,32 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 23.4.25 | 20,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 17.3.25 | 188,00 kr/kg |
Gullkarfi | 15.5.25 | 244,53 kr/kg |
Litli karfi | 13.5.25 | 10,00 kr/kg |
15.5.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 3.998 kg |
Steinbítur | 3.400 kg |
Ýsa | 3.052 kg |
Skarkoli | 195 kg |
Langa | 40 kg |
Karfi | 5 kg |
Samtals | 10.690 kg |
15.5.25 Mardís ÍS 400 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 382 kg |
Samtals | 382 kg |
15.5.25 Hlökk ST 66 Landbeitt lína | |
---|---|
Þorskur | 7.386 kg |
Ýsa | 3.940 kg |
Steinbítur | 118 kg |
Keila | 80 kg |
Skarkoli | 32 kg |
Karfi | 20 kg |
Samtals | 11.576 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 15.5.25 | 522,85 kr/kg |
Þorskur, slægður | 15.5.25 | 557,60 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 15.5.25 | 449,25 kr/kg |
Ýsa, slægð | 15.5.25 | 406,52 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 15.5.25 | 11,00 kr/kg |
Ufsi, slægður | 15.5.25 | 280,32 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 23.4.25 | 20,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 17.3.25 | 188,00 kr/kg |
Gullkarfi | 15.5.25 | 244,53 kr/kg |
Litli karfi | 13.5.25 | 10,00 kr/kg |
15.5.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 3.998 kg |
Steinbítur | 3.400 kg |
Ýsa | 3.052 kg |
Skarkoli | 195 kg |
Langa | 40 kg |
Karfi | 5 kg |
Samtals | 10.690 kg |
15.5.25 Mardís ÍS 400 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 382 kg |
Samtals | 382 kg |
15.5.25 Hlökk ST 66 Landbeitt lína | |
---|---|
Þorskur | 7.386 kg |
Ýsa | 3.940 kg |
Steinbítur | 118 kg |
Keila | 80 kg |
Skarkoli | 32 kg |
Karfi | 20 kg |
Samtals | 11.576 kg |