Ársverðbólgan mælist nú 4,2% og eykst frá því í síðasta mánuði þegar hún mældist 3,8%. Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,84% milli mánaða.
Sérfræðingar höfðu flestallir spáð því að verðbólga myndi aukast lítillega
Í tilkynningu frá Hagstofunni kemur fram að verð á flugfargjöldum til útlanda hafi hækkað um 12,7% og kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði hækkaði um 0,7%
Síðastliðna 12 mánuði hefur vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkað um 3,2%.