Heimar ljúka kaupum á Grósku og Gróðurhúsinu

Gróska hugmyndahús Vísindagarðar Háskóla Íslands HÍ.
Gróska hugmyndahús Vísindagarðar Háskóla Íslands HÍ. mbl.is/Sigurður Ragnarsson

Fasteignafélagið Heimar hf. hefur nú formlega lokið kaupum á öllu hlutafé í Grósku ehf. og Gróðurhúsinu ehf., samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar í dag. Um er að ræða eignina Grósku að Bjargargötu 1 í Reykjavík, sem talin er ein stærsta og metnaðarfyllsta skrifstofubygging landsins.

Gróðurhúsið ehf. rekur sprotasetur og vinnurými í fasteigninni, sem er BREEAM umhverfisvottuð. Með kaupunum hækkar hlutfall vottaðra eigna í eignasafni Heima úr 38,9% í 41,1%.

Kaupverðið var greitt með útgáfu og afhendingu 258 milljóna nýrra hluta í Heima, sem hafa verið teknir til viðskipta hjá Nasdaq Iceland.

Samhliða viðskiptunum mun fjárfestingarfélagið Omega ehf. kaupa hlut Björgólfs Thors Björgólfssonar og verða eftir það stærsti hluthafi Heima með liðlega 12,5% hlut.

Gróska er einstök bygging sem státar af öflugu samfélagi nýsköpunar og skapandi greina og sómir sér afar vel í okkar eignasafni. Staðsetningin á Háskólasvæðinu, stærð og hönnun hússins, auk nálægðar við miðborgina, mun að okkar mati styðja við stöðuga eftirspurn leigutaka eftir skrifstofum og öðru atvinnuhúsnæði í Grósku til langrar framtíðar,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima, í tilkynningunni.

Birgir Már Ragnarsson, stjórnarformaður Grósku og meðeigandi Omega ehf., segir söluna marka tímamót í sögu Grósku:

Svona metnaðarfullt hús verðskuldar öflugan eiganda sem hefur burði til að halda þróuninni áfram. Heimar eru öflugasta fasteignafélag landsins með flotta framtíðarsýn og í mínum huga rétti aðilinn til að taka við rekstri Grósku. Framtíðin er björt.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
OSZAR »