Frá Keflavík í Breiðablik

Ismael Herrero, til hægri, í leik með Keflavík gegn Val …
Ismael Herrero, til hægri, í leik með Keflavík gegn Val í vetur. mbl.is/Karítas Sveina Guðjónsdóttir

Spænski körfuknattleiksmaðurinn Ismael Herrero sem hefur leikið hér á landi undanfarin fjögur ár, síðast með Keflavík í úrvalsdeildinni á síðasta tímabili, hefur verið ráðinn þjálfari hjá Breiðabliki.

Hann verður í þjálfarateymi meistaraflokks karla, sem leikur í 1. deild, og þjálfar elstu yngri flokka Kópavogsfélagsins.

Herrero er 28 ára gamall og lék með Sindra á Hornafirði í þrjú ár í 1. deildinni áður en hann gekk til liðs við Keflvíkinga. Hann lék 17 leiki með Keflavík í úrvalsdeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »