„Þetta er frábært. Ég er ógeðslega glaður að fá að halda áfram hérna og fá að halda áfram að byggja ofan á það sem við vorum búnir að gera hérna síðasta vetur,“ sagði Ægir Þór Steinarsson, fyrirliði Íslandsmeistara Stjörnunnar í körfuknattleik, eftir að hann skrifaði undir nýjan tveggja ára samning við félagið.
„Með öllum þessum frábæru leikmönnum sem eru í liðinu eigum við núna sénsinn til þess að verja þennan titil sem við náðum að vinna.
Það er ótrúlega spennandi verkefni líka. Þú ert að sækja titil og nú ertu að fara að verja hann. Það er mjög spennandi,“ sagði Ægir Þór í samtali við mbl.is.
Spurður hvort önnur félög hefðu falast eftir honum sagði Ægir Þór:
„Ég skal ekki segja. Mér fannst eins og ég hafi bara verið fastur á því að taka slaginn aftur hérna. Ég held að menn hafi kannski ekki verið að eltast neitt sérstaklega við mig á þessum tímapunkti, vitandi það að ég ætlaði mér að vera hér. Hugurinn var aldrei farinn neitt annað en að vera hérna áfram í Stjörnunni.“
Hann kvaðst spenntur fyrir því að reyna að verja Íslandsmeistaratitilinn á næsta tímabili.
„Það verður mikil barátta. Við sjáum það eins og á árinu í ár þá þarftu að sækja hann. Þó þú sért að verja titil þá ertu ekki með hann í höndunum, þú þarft að sækja titilinn.
Öll félög eru að reyna að búa til alvöru lið til þess að vinna titla, þar á meðal við. Það þarf að eiga gott tímabil og það verður allt að ganga upp.“