Viktor ráðinn þjálfari í Færeyjum

Viktor Lekve er nýr þjálfari karlaliðs KÍF í Færeyjum.
Viktor Lekve er nýr þjálfari karlaliðs KÍF í Færeyjum. Ljósmynd/Kollafjarðar Ítróttarfelag

Færeyska handknattleiksfélagið KÍF frá Kollafirði hefur ráðið Viktor Lekve í starf þjálfara karlaliðsins, sem leikur í efstu deild Færeyja. Einnig mun hann vera yfirþjálfari yngri flokka hjá félagið.

Viktor er 35 ára gamall og var síðast aðstoðarþjálfari karlaliðs KA. Þar á undan var hann aðstoðarþjálfari karlaliðs Fjölnis frá 2022 til 2024 og hefur einnig þjálfað hjá Víkingi og Fylki.

Eins og kemur fram í tilkynningu KÍF býr Viktor þrátt fyrir nokkuð ungan aldur yfir 16 ára reynslu af þjálfun.

„Við erum öll mjög spennt fyrir því sem framtíðin ber í skauti sér og leikmennirnir hlakka til að byrja með nýja þjálfaranum. Velkominn Viktor!“ sagði í tilkynningu frá KÍF.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »