Handknattleiksmaðurinn Sigurður Páll Matthíasson, línumaður Víkings úr Reykjavík og U21-árs landsliðs Íslands, hefur skrifað undir nýjan samning við Víking sem gildir til næstu tveggja ára.
Sigurður Páll, sem er tvítugur, er um þessar mundir við keppni með U21-árs landsliðinu á HM 2025 í Katowice í Póllandi.
Víkingur spilar í 1. deild annað tímabilið í röð og ljóst að línumaðurinn knái mun reynast liðinu vel í baráttunni um að komast upp í úrvalsdeildina að nýju.
„Ég er þakklátur fyrir traustið og spenntur fyrir áframhaldandi vegferð með Víkingi. Þetta er frábært umhverfi fyrir mig sem leikmann og markmiðið er skýrt – við ætlum okkur upp í Olís-deildina,“ sagði Sigurður Páll í tilkynningu frá handknattleiksdeild Víkings.