Irma sló Íslandsmetið í Maribor

Irma Gunnarsdóttir sló Íslandsmetið sitt í Maribor í dag.
Irma Gunnarsdóttir sló Íslandsmetið sitt í Maribor í dag. mbl.is/Óttar Geirsson

Irma Gunnarsdóttir úr FH sló í dag Íslandsmet sitt í þrístökki kvenna þegar hún keppti fyrir Íslands hönd í 3. deild Evrópubikarsins í Maribor í Slóveníu.

Irma varð önnur í þrístökkskeppninni, stökk 13,72 metra, en fyrra met hennar sem var tveggja ára gamalt, var 13,40 metrar.

Hún háði harða keppni um efsta sætið við Yekaterinu Sariyevu frá Aserbaídsjan sem hafði betur og stökk 13,87 metra en báðar náðu þær sínum lengstu stökkum í fimmtu umferð af sex. Irma var áður með forystuna og hafði þegar bætt Íslandsmetið með því að stökkva 13,44 metra í annarri umferð.

Irma stökk 13,55 metra í lokaumferðinni og fór því yfir gamla Íslandsmetið sitt í öllum fjórum gildum stökkum sínum í keppninni í dag.

Ísland styrkir enn stöðuna í efsta sæti stigakeppni 3. deildarinnar því annað sætið hefur náðst í báðum  greinum dagsins sem lokið er.

Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir varð önnur í sleggjukasti kvenna, kastaði 66,04 metra, en hún og Yipsi Moreno frá Albaníu voru í sérflokki. Moreno, sem er 44 ára gömul, sigraði með því að kasta 67,96 metra og setja albanskt met.

Ísland er með 292 stig eftir 22 greinar af 37,  Lúxemborg er með 250,5 stig, Bosnía 230, Moldóva 228 og Malta 220 stig í efstu sætunum en 15 þjóðir keppa í 3. deildinni í Maribor. Þrjár þær fyrstu tryggja sér sæti í 2. deild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »