Andrea Kolbeinsdóttir sló eigið Íslandsmet í 3.000 metra hindrunarhlaupi kvenna í 3. deild Evrópubikarkeppni landsliða í frjálsíþróttum sem nú stendur yfir í Maribor í Slóveníu.
Andrea hafnaði í öðru sæti í hlaupinu á 10:07,38 mínútum og náði að bæta metið um rúma sekúndu en hún hljóp vegalengdina á 10:08;85 mínútum fyrir nánast nákvæmlega tveimur árum, eða 22. júní 2023.
Hún kom í mark 12 sekúndum á eftir Andreeu Stavilu frá Moldóvu sem sigraði á 9:55,81 mínútum en Andrea hélt vel í við hana stóran hluta hlaupsins þar sem þær tvær voru í sérflokki.
Með frammistöðunni jók Andrea enn forskot Íslands á toppnum í stigakeppni 3. deildarinnar þar sem fimmtán þjóðir slást um þrjú sæti í 2. deild Evrópubikarsins.